Innlent

Hollensk kona slasaðist á göngu á Íslandi: Leitar að bjargvættum sínum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hollensk kona sem slasaðist á Leirhnjúk leitar nú að bjargvættum sínum sem báru hana niður.
Hollensk kona sem slasaðist á Leirhnjúk leitar nú að bjargvættum sínum sem báru hana niður. Mynd/The Star
Hollensk hjón, Mia og Fred Flipse, sem ferðuðust um Ísland í sumar leita nú að kanadískum ferðamönnum sem komu þeim til bjargar á Leirhnjúki í Mývatnssveit eftir að Mia féll um stein og brákaði ökkla.

Fjallað er um málið á vef kanadíska fjölmiðilsins Star en hjónin leituðu til Star í von um að þau gætu fundið kanadísku ferðamennina og þakkað þeim kærlega fyrir aðstoðina.

Mia og Fred voru ein á göngu upp Leirhnjúk þegar Mia féll við og gat ekki haldið áfram göngu. Í umfjöllun Star segir að parið hafi fundið fyrir vonleysi eitt og yfirgefið í hrauninu þegar tíu manna hóp bar að. Hópurinn, sem var frá Toronto í Kanada, gerði sér lítið fyrir og bar konuna niður í öruggt skjól.

„Við vorum svo glöð að þeir skyldu birtast. Þeir voru svo hjálpsamir og indælir. Við erum mjög þakklát en skömmumst okkur fyrir það að hafa ekki fengið nöfnin hjá þeim svo við gætum þakkað þeim kærlega fyrir,“ sögðu hjónin í samtali við Star.

Leituðu þau því til blaðamanns Star í von um að þau gætu komist í samband við hópinn sem kom þeim til bjargar. Í ljós kom að Mia hafði brákað ökkla á þremur stöðum og fór hún í aðgerð vegna meiðslanna hér á landi áður en hún hélt heim á leið til Hollands.

Segja hjónin að bjargvættirnir hafi verið á aldrinum 20-30 ára og vonast þau til þess að lesendur Star geti hjálpað þeim að komast í samband við ferðamennina.

„Við viljum þakka þeim kærlega fyrir. Við erum hrærð yfir því að það er svona gott fólk til í heiminum,“ sögðu hjónin. „Við vonum að þið getið hjálpað okkur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×