Fótbolti

Hollendingar töpuðu fyrir Tékkum á heimavelli og fara ekki á EM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Robin van Persie og félagar eru úr leik.
Robin van Persie og félagar eru úr leik. Vísir/Getty
Tékkar tryggðu sér sigur í A-riðlinum með því að vinna 3-2 sigur á Hollendingum á Amsterdam ArenA í kvöld. Tékkar enda með 22 stig eða tveimur stigum meira en Íslendingar sem urðu að sætta sig við annað sætið.

Hollendingar pressuðu mikið í lokin en tókst ekki að jafna leikinn sem hefði þó aðeins hjálpað Íslendingum en ekki þeim því Tyrkir unnu Ísland á sama tíma.

Tékkar komust í 3-0 í leiknum þar af kom þriðja markið eftir að þeir voru búnir að missa mann af velli.

Hollendingar voru í miklum vandræðum í fyrri hálfleiknum og Tékkar voru komnir í 2-0 eftir aðeins 35 mínútur.

Bakvörðurinn Pavel Kaderábek skoraði fyrra markið á 24. mínútu eftir sendingu Jirí Skalák og ellefu mínútum síðar kom  Josef Sural Tékkum tveimur mörkum yfir.

Danny Blind tók Jairo Riedewald af velli á 39. mínútu og setti inná völlinn reynsluboltann Robin van Persie.

Robin van Persie lífgaði strax upp á sóknarleik Hollendinga en þeir urðu síðan manni fleiri á 43. mínútu þegar Marek Suchý fékk beint rautt spjald fyrir brot á Memphis Depay.

Robin van Persie tókst ekki að koma boltanum í mark Tékka en hann fann leiðina í eigið mark.

Van Persie varð nefnilega fyrir því óláni að skalla boltann í eigið mark á 66. mínútu eftir aukaspyrnu frá hægri.

Klaas-Jan Huntelaar minnkaði muninn fjórum mínútum síðar með skalla eftir aukaspyrnu Wesley Sneijder.

Robin van Persie skoraði síðan í rétt mark á 83. mínútu og gaf hollenska liðinu smá von. Þeir þurftu hinsvegar tvö mörk og þau komu ekki auk þess að sigur Tyrkja á Íslendingum þýddi að Holland átti aldrei möguleika á því að komast á HM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×