Erlent

Hollendingar syrgja hina látnu

Atli Ísleifsson skrifar
193 fórnarlamba árásarinnar á MH17 voru Hollendingar.
193 fórnarlamba árásarinnar á MH17 voru Hollendingar. Vísir/AFP
Þjóðarsorg ríkir nú í Hollandi og er flaggað í hálfa stöng um land allt í dag. Flugvélar með líkum um fimmtíu fórnarlamba árásarinnar á MH17 lenti á flugvellinum í Eindhoven skömmu eftir hádegi í dag.

Sérfræðingar munu nú hefja störf við að bera kennsl á líkin sem mörg eru mjög illa farin, en flest fórnarlamb árásarinnar voru Hollendingar.

Hollenska konungsfjölskyldan, forsætisráðherra og fleiri hundruð aðstandenda fórnarlambanna tóku á móti herflugvélunum tveimur sem fluttu kisturnar frá Kharkiv í Úkraínu í dag.

Líkin verða nú flutt í Korporaal van Oudheusden herskálanna suður af bænum Hilversum þar sem unnið verður að því að bera kennsl á líkin. Mark Rutte forsætisráðherra segist gera ráð fyrir að sú vinna geti tekið marga mánuði.

Kirkjur í Hollandi hafa allar verið opnar í dag á meðan söfn, dýragarðar og fleiri stofnanir hafa breytt dagskrá sinni til að virða minningu hinna látnu. Fjölmargir hafa skilið eftir blómvendi og minningarkort fyrir utan heimili fórnarlamba.

Vísir/AFP
Vísir/AFP

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×