Matur

Hollari kleinuhringir að hætti Evu

Rikka skrifar
Matarmyndir
Matarmyndir

Kleinuhringjagleðin ræður ríkjum í höfuðborginni um þessar mundir og margir fagna því að ein stærsta kleinuhringjakeðja heims er komin til landsins. Fyrir þá sem hafa ekki þolinmæði til að bíða í röð fyrir utan kleinuhringjaverslun er tilvalið að skella í þessa einföldu og ljúffengu kleinuhringi. Það er ekkert mál að baka kleinuhringina, það eina sem þarf er gott kleinuhringjaform sem fæst meðal annars í Hagkaupi. Þetta er að sjálfsögðu hollari útgáfa af kleinuhringjum þar sem þeir eru ekki djúpsteiktir. En við erum svo sem ekkert að spá í hollustu þegar kleinuhringir eru annars vegar. Það má nú leyfa sér eitthvað við og við, mæli með að þið prófið þessa, kæru lesendur, og njótið.

Kleinuhringir með vanillubragði og bleikum glassúr

Kleinuhringirnir

 2,5 dl Kornaxhveiti

 1,5 tsk. lyftiduft

 3 msk. sykur

 1-1,5 dl ab-mjólk

 2 msk. brætt smjör

 1 egg, pískað

 1 tsk. vanilla extrakt eða dropar

 ½-1 tsk. vanilluduft (eða fræin úr vanillustöng)

Blandið öllu saman í skál, ef ykkur finnst deigið of þurrt þá bætið þið meiri ab-mjólk út í það. Smyrjið kleinuhringjaform og sprautið deiginu jafnt í formin.

Bakið við 180°C í 8 til 10 mínútur eða þangað til þeir verða gullinbrúnir.

Leyfið þeim að kólna og skreytið þá með góðum glassúr.

Bleikur glassúr

50 g smjör, brætt

150-200 g flórsykur

Vatn eftir þörfum

Vanilludropar, magn eftir smekk

Bleikur matarlitur, magn eftir smekk (þið getið líka notað Ribena-sólberjasafa)

Bræðið smjör í potti.

Blandið flórsykrinum saman við og hrærið stöðugt í, bætið vatni og vanillu saman við og hrærið þar til þið eruð ánægð með áferðina á glassúrnum.

Njótið með ísköldu mjólkurglasi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×