Jól

Hollar karamellur og rommkúlur

Elín Albertsdóttir skrifar
Lúffengar karamellur og rommkúlur en samt  sykurlaust sælgæti.
Lúffengar karamellur og rommkúlur en samt sykurlaust sælgæti. MYNDIR/GVA
María Krista Hreiðarsdóttir segir að hún geri oft hollt konfekt þegar sykurlöngun hellist yfir hana. Það er líka fallegt að hafa það í skálum fyrir jólin eða setja í jólapakkann.

Það er mun betra að grípa í svona mola heldur en í sykurinn. Ég hef haldið mig við allt sykur- og glútenlaust í næstum þrjú ár. Ég er samt ekki heilög eða með neinar öfgar. Ég hef farið út af brautinni en reyni að halda mig við sykurlausa lífið því það er mun betra,“ segir María Krista. „Þessar karmellur eru til dæmis eins og bestu rjómakaramellur á bragðið. Það er einfalt að gera þær og algjör snilld að pakka þeim inn í smjörpappír og gefa í jólagjöf.“

María Krista er mikið jólabarn og byrjar snemma að undirbúa jólin. „Ég er alltaf með saumaklúbb í desember og þá hefjast jólin því ég skreyti alltaf fyrir hann. Þess vegna er allt skreytt hjá mér um miðjan desember. Allir koma með einn rétt og úr verður glæsilegt hlaðborð. Klúbburinn hefur haldið saman í tuttugu ár. Þar sem ég bý aðeins fyrir utan þéttbýli verður falleg stemming í umhverfinu þegar jólaljósin eru komin upp,“ segir hún.

Þótt María Krista hallist að hollu fæði fannst henni hamborgarhryggurinn ómissandi á jólaborðið. „Eftir að ég breytti um lífsstíl prófaði ég að hafa kalkúnabringu og grasker í staðinn fyrir brúnaðar kartöflur. Það hefur slegið í gegn,“ segir María Krista.

Fallegt á borði eða í jólapakkann. Æðislegt sykurlaust sælgæti frá Maríu Kristu. MYND/GVA
Döðlukaramellur

200 g niðurbrytjaðar döðlur

50 g Sukrin Gold

100 g smjör

1½ tsk. vanilludropar eða -duft

1 msk. gróft salt

2 msk. rjómi (má sleppa)

Hitið allt saman í potti á meðalhita. Þegar blandan fer að mýkjast upp þá er gott að setja hana í blandara eða nota töfrasprota til að mauka allt vel saman. Farið varlega því karamellan verður heit. Þegar karamellan er fallega brún er henni hellt á smjörpappír og ágætt að móta lengju úr henni. Pakkið karamellunni vel saman og gangið frá endunum. Frystið í nokkra klukkutíma.

Þegar karamellan er orðin köld og stíf er hægt að skera hana í hæfilega bita. Döðlukaramella geymist best í kæli í lokuðu íláti.

Rommkúlur

60 g pekanhnetur

50 g fínmöluð sæta, t.d. Via Health

1½ msk. rommdropar

2 msk. chiafræ

20 dropar vanillustevía

1 eggjahvíta

40 g möndluflögur

1 msk. kakó

Maukið allt vel saman í matvinnsluvél þar til deigið er orðið að einni kúlu. Kælið í plastoka í 15 mín. Rúllið þá út deiginu og skerið í litla bita, rúllið upp í kúlur. Kælið aftur á meðan hjúpurinn er hitaður.

Hjúpur

100 g af Valor, sykurlausu súkkulaði

1 tsk. kókosolía

1 tsk. appelsínudropar

Hitið súkkulaðið og olíuna yfir vatnsbaði. Húðið rommkúlurnar og kælið. Þessar eru dásamlegar með kaffi.






×