Viðskipti erlent

Hollande skattleggur sumarhúsin

Finnur Thorlacius skrifar
Sumarhús af betri gerðinni á frönsku rívíerunni.
Sumarhús af betri gerðinni á frönsku rívíerunni.
Loforð forseta Frakklands, Francois Hollande, um enga nýja skatta entist ekki lengi, en nú hefur ríkisstjórn hans boðað aukna fasteignaskatta á sumarhús í Frakklandi. Rökstuðningurinn með skattheimtunni er húsnæðisskortur, en með tilkomu skattsins séu eigendur þeirra hvattir til að selja húsin eða leigja þau út. Það finnst eigendum þeirra ekki góðar kveðjur.

Þessi nýi skattur á að tryggja franska ríkinu, sem er einkar fjárvana þessa dagana, 150 þúsund evrur á ári, eða 23 milljarða króna. Hollande vill meina að mörg af sumarhúsum í Frakklandi séu í eigu útlendinga og að það réttlæti frekar skattheimtuna þar sem hún fellur því ekki eins skart á franska íbúa, nema þeirra sem vita vart aura sinna tal.

Parísarbúar eiga 174.000 sumarhús, eða um 16% heimila þar, en í ákveðnum hverfum er sú tala um 40%. Sumarhús í Frakklandi eru samtals 3,2 milljónir og er það um 10% alls húsnæðis í Frakklandi. Til samanburðar eru 3% húsa í Bandaríkjunum sumarhús. Þessi nýja skattheimta Francois Hollande mun vart minnka óvinsældir hans mikið meira, en aðeins 16% Frakka styðja hann í starfi þessa dagana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×