Erlent

Hollande ætlar sér að loka Calais-búðunum

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Flóttamaður í Calais-búðunum, þar sem allt að tíu þúsund manns búa við lélegar aðstæður.
Flóttamaður í Calais-búðunum, þar sem allt að tíu þúsund manns búa við lélegar aðstæður. Nordicphotos/AFP
Francois Hollande, forseti Frakklands, segist staðráðinn í að loka flóttamannabúðunum í Calais fyrir árslok. Hann vill samt að Bretar taki þátt í kostnaðinum.

Hollande skýrði frá þessu í gærmorgun þegar hann hélt til Calais að hitta þar lögreglumenn og stjórnmálamenn. Ekki heimsótti hann þó búðirnar sjálfar.

Þar hafast við allt að tíu þúsund flóttamenn, sem flestir hverjir vonast til að geta komist í gegn um Ermarsundsgöngin yfir til Bretlands. Margir hafa reynt að laumast yfir sundið með því að fela sig í flutningabílum sem eru á leiðinni inn í göngin.

Í síðustu viku var byrjað að reisa múr einn mikinn meðfram þjóðveginum til að einangra hann frá búðunum. Þannig verði flóttafólkinu þar gert erfiðara að nálgast umferðina undir Ermarsundið.

Það eru Bretar sem fjármagna þessa múrgerð, sem talið er að hafi kostað hátt í tvær milljónir punda, sem er jafnvirði nærri 300 milljóna króna.

Fyrr á þessu ári var svæðið, sem búðirnar eru á, minnkað um helming. Engu að síður hefur íbúum þeirra fjölgað. Opinberlega er fullyrt að um sjö þúsund manns búi þar, en talið er að raunverulegur fjöldi sé nær tíu þúsundum. Þar á meðal eru um þúsund börn.

Frönsk stjórnvöld reyna nú að koma þessu fólki fyrir annars staðar í Frakklandi fyrir vetrarbyrjun.

Hollande Frakklandsforseti er strax byrjaður að undirbúa kosningabaráttu sína fyrir forsetakjör á næsta ári.vísir/epa
Búðirnar voru aldrei skipulagðar af stjórnvöldum heldur kom flóttafólk sér þar sjálft fyrir og setti þar upp tjöld og bráðabirgðaskýli af ýmsu tagi.

Fyrstu búðirnar risu þar stuttu fyrir aldamótin. Stjórnvöld hafa reglulega reynt að loka þeim en fólkið hefur þá bara komið sér fyrir annars staðar í nágrenninu. 

Hjálparstofnanir hafa útvegað fólkinu heilbrigðisþjónustu en hreinlætisaðstaða er mjög bágborin.

Heimsókn Hollande til Calais virðist vera liður í undirbúningi hans fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Nicolas Sarkosy, fyrrverandi forseti, kom einnig til Calais í síðustu viku, en hann vonast til þess að endurheimta embættið.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×