Fótbolti

Holland reif sig í gang og lagði Evrópumeistarana

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Davy Klaassen fagnar marki sínu.
Davy Klaassen fagnar marki sínu. vísir/getty
Fjögur af þeim fimm liðum sem eru með Íslandi í A-riðli undankeppni EM 2016 spiluðu vináttulandsleiki í kvöld.

Lettar, sem gerðu gott jafntefli við Tékka um helgina, gerðu aftur jafntefli í kvöld á útivelli gegn Úkraínu.    

Oleg Gusev kom heimamönnum í Úkraínu yfir en Vitalijs Maksimenko bjargaði jafntefli fyrir Lettana með marki í uppbótartíma. Lettar líta betur út þessa dagana en þegar Ísland mætti liðinu í vetur.

Tyrkir unnu sigur, en nauman þó, á smáþjóðinni Lúxemborg á útivelli. Tyrkir gerðu jafntefli við Holland í undankeppni EM um helgina og voru að spila vel.

Mevlut Erding kom Tyrkjum yfir á fjórðu mínútu en Mario Mutsch jafnaði fyrir heimamenn á 31. mínútu leiksins.

Tyrkirnir náðu ekki að skora sigurmarkið fyrr en þrjár mínútur voru til leiksloka en það skoraði Hakan Calhanoglu, leikmaður Bayer Leverkusen. Lokatölur, 2-1.

Slóvakar hafa verið í miklu stuði í undankeppninni og unnið alla sína leiki. Þeir héldu áfram að vinna í kvöld og lögðu Tékka, 1-0. Tékkland er eina liðið sem hefur tekið stig af Íslandi í A-riðli undankeppninnar.

Ondrej Duda skoraði eina mark leiksins á 49. mínútu, en komist Ísland á EM virðist nokkuð líklegt að Slóvakar verði einnig í Frakklandi miðað við hvernig þeir eru að spila.

Hollendingar spiluðu stærsta leikinn en þeir tóku á móti Evrópumeisturum Spánar á Amsterdam Arena í Amsterdam í kvöld.

Holland hefur átt í vandræðum í undankeppninni en þeir rifu sig í gang í kvöld og unnu 2-0 sigur. Stefan de Vrij og Davy Klaassen skoruðu mörkin á 13. og 16. mínútu.

Þá gerðu Kasakar góða ferð til Rússland og nældu í markalaust jafntefli, en þeir fengu skell af hálfu strákanna okkar í Astana um helgina, 3-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×