Lífið

Höll minninganna: Frá Hönnu Birnu til Hönnu Birnu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hanna Birna Kristjánsdóttir var ein af fjórum táningum í umfjöllun um fermingar í Vikunni árið 1980.

Í sama blaði var mynd af Katrínu Júlíusdóttir í kúrekaklæðnaði á Kisudeild leikskólans Álftaborgar.

Katrín fermdist í Kópavogskirkju árið 1988, þann 24 apríl klukkan 14.00.

Sama dag klukkan 10.30 fermdist tónleikahaldarinn Ísleifur B. Þórhallsson í sömu kirkju.

Ísleifur var í ritnefnd Verzlunarskólablaðsins árið 1994.

Ísleifur hélt tónleika með Justin Timberlake á sunnudagskvöld. Meðal gesta var Bjarni Benediktsson en Bjarni situr með Hönnu Birnu í ríkisstjórn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×