Golf

Hokkístjarna með Happy Gilmore tilburði á flötinni | Myndband

Oshie líður betur á ísnum en grasinu
Oshie líður betur á ísnum en grasinu Vísir/Getty
T.J. Oshie hægri kantmaður St. Louis Blues í NHL deildinni í hokkí í Norður-Ameríku og hetja bandaríska landsliðsins frá ólympíuleikunum í Sochi sýndi tilburði með pútterinn sem hann vill fljótt gleyma.

Oshie var að leika á American Century góðgerðarmótinu þegar hann upplifði sannkallað Happy Gilmore augnablik á einni flötinni.

Oshie fjórpúttaði af um þriggja metra færi eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan. Það er ekki fallegt að hlægja að óförum annarra en líkindin við vandræði Happy Gilmore sem Adam Sandler lék í samnefndri mynd og sjá má hér að neðan eru skemmtileg og þá ekki síst í ljósi þess að Happy þráði ekkert eins mikið og að ná frama í íshokkí.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×