Viðskipti innlent

Högnuðust um 106,8 milljarða

Sæunn Gísladóttir skrifar
Ríkið kemur til með að fá allt að fjörutíu milljarða í arð frá viðskiptabönkunum vegna ársins 2015.
Ríkið kemur til með að fá allt að fjörutíu milljarða í arð frá viðskiptabönkunum vegna ársins 2015.
Viðskiptabankarnir þrír högnuðust um 106,8 milljarða króna árið 2015. Arion banki hagnaðist mest eða um tæpa fimmtíu milljarða króna. Afkoman markast mjög af óreglulegum liðum. Bankinn seldi á árinu hluti í fimm félögum, Reitum fasteignafélagi, Eik fasteignafélagi, Símanum, alþjóðlega drykkjarframleiðandanum Refresco Gerber og Bakkavor Group.

Minna munaði milli bankanna í hagnaði af reglulegri starfsemi. Þar hagnaðist Arion banki um 16,8 milljarða króna, sem var hækkun á milli ára, en Íslandsbanki hagnaðist um 16,2 milljarða króna, sem var einnig hækkun milli ára.

Arðsemi eigin fjár hækkaði bæði hjá Arion banka og Landsbankanum, en lækkaði hjá Íslandsbanka. Arðsemin var hæst hjá Arion banka þar sem hún nam 28,1 prósenti, en lægst hjá Íslandsbanka þar sem hún nam 10,8 prósentum.

Miklu munaði á launum bankastjóranna á árinu. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, var launahæstur með 55,9 milljónir í laun á árinu, auk 7,2 milljóna króna í árangurstengda greiðslu. Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, var launalægstur með tæplega tuttugu milljónir í árslaun og fékk hann engar árangurstengdar greiðslur. Munurinn skýrist af því að Landsbankinn er í ríkiseigu og eru laun Steinþórs því ákvörðuð af Kjararáði. Íslandsbanki er nú á leið í ríkiseigu og því eru allar líkur á að laun Birnu Einarsdóttur bankastjóra gætu lækkað allverulega á árinu.

Að meðaltali voru stöðugildi hjá bönkunum þremur tæplega 3.500. Meðalfjöldi stöðugilda dróst saman hjá Landsbankanum og Íslandsbanka.

Arðgreiðslur frá bönkunum til ríkisins geta numið á bilinu 28 til 38 milljarða króna, vegna ársins 2015. Lagt verður til við aðalfund að greiddur verði 28,5 milljarða króna arður til hluthafa Landsbankans vegna ársins 2015. Ríkissjóður Íslands á 98,2 prósent hlut í Landsbankanum og mun þá fá tæplega 28 milljarða í arð.

Samkvæmt reglum Íslandsbanka um arðgreiðslur er lagt til að helmingur hagnaðarins vegna ársins verði greiddur til hluthafa. Lagt er því til að arðgreiðslur muni nema 10,3 milljörðum króna. Íslandsbanki er ekki enn formlega kominn í ríkiseigu en von er á því á næstu dögum. Líklegt er því að ríkið fái arðgreiðsluna, en það fer allt eftir því hvernig samið var.

Stjórn Arion banka leggur til að hagnaður ársins verði færður meðal eiginfjár og að enginn arður verði greiddur á árinu 2016 vegna uppgjörsársins 2015.


Tengdar fréttir

Birna íhugar stöðu sína

Laun bankastjóra Íslandsbanka gætu orðið rúmlega helmingi lægri eftir ríkiseign. Framkvæmdastjórn bankans vonar að eignarhald ríkisins vari stutt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×