Hoffenheim búið að selja besta framherjann sinn

Vísir Þýski boltinn 25. janúar 2012 15:00
Vedad Ibisevic.
Vedad Ibisevic. Nordic Photos / Getty Images
Hoffenheim, lið Gylfa Þórs Sigurðssonar í þýsku úrvalsdeildinni, hefur ákveðið að selja sinn helsta framherja til Stuttgart.

Sá heitir Vedad Ibisevic og er Bosníumaður. Hann hefur skorað fimm mörk á tímabilinu til þessa og er markahæstur í liðinu ásamt Brasilíumanninum Roberto Firmino. Ibisevic hefur þó aðeins spilað tíu leiki á tímabilinu en Firmino sautján.

Gylfi Þór er nú í láni hjá Swansea í ensku úrvalsdeildinni en hann var markahæsti maður Hoffenheim í sumar. Meiðsli settu strik í reikninginn hjá honum í upphafi tímabilsins og fékk hann lítið að spila eftir að hann varð heill á ný.

Aðeins fjórir leikmenn hafa skorað átján deildarmörk Hoffenheim á tímabilinu og því mátti Hoffenheim ekki við því að missa Ibisevic. Hins vegar var ákveðið að ganga að tilboði Stuttgart sem er sagt vera upp á 5,5 milljónir evra, þrátt fyrir  yfirlýsingar eigandans Dietmar Hopp fyrr í vikunni að hann væri mótfallinn sölunni.

Gengi Hoffenheim á tímabilinu hefur ekki verið frábært en liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu átta leikjum sínum í deildinni. Liðið er þó í áttunda sæti með 23 stig og siglir því lygnan sjó í bili.

Gylfi Þór er samningsbundinn Hoffenheim til 2014 en gæti gert langtímasamning við Swansea ef félagið ákveður að kaupa hann í sumar.

Fleiri fréttir - Þýski boltinn

Þýski boltinn 18. maí. 2012 13:30

Rekinn eftir aðeins 57 daga í starfi

Krassimir Balakov entist ekki lengi í starfi hjá þýska liðinu Kaiserslautern en hann var r...  

Meira
Þýski boltinn 15. maí. 2012 23:57

Hertha féll í Þýskalandi | Allt brjálað á vellinum

Stöðva þurfti leik Fortuna Düsseldorf og Herthu Berlínar tvívegis í kvöld vegna óláta áhor...  

Meira
Þýski boltinn 12. maí. 2012 19:56

Dortmund bikarmeistari með glæsibrag

Borussia Dortmund er tvöfaldur meistari í Þýskalandi. Í dag pakkaði Dortmund liði Bayern M...  

Meira
Þýski boltinn 10. maí. 2012 17:00

Schweinsteiger dreymir um að fá Mourinho til Bayern

Þýski landsliðsmaðurinn Bastian Schweinsteiger hjá FC Bayern er mikill aðdáandi þjálfarans...  

Meira
Þýski boltinn 08. maí. 2012 23:15

Fær einkabílstjóra allan sólarhringinn og hús að eigin vali

Króatíski landsliðsmaðurinn Daniel Pranjic hjá Bayern München er á förum frá félaginu efti...  

Meira
Þýski boltinn 06. maí. 2012 14:23

Hólmar og félagar enduðu í ellefta sæti

Lokaumferð þýsku B-deildarinnar fór fram í dag en Bochum, lið Hólmars Arnar Eyjólfssonar, ...  

Meira
Þýski boltinn 05. maí. 2012 15:42

Köln féll en Hertha á möguleika á að bjarga sér

Lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar fór fram í dag og var mesta spennan á botni deildarinn...  

Meira
Þýski boltinn 03. maí. 2012 17:45

Robben samdi við Bayern til ársins 2015

Hollendingurinn Arjen Robben ætlar að spila áfram með þýska liðinu Bayern Munchen en hann ...  

Meira
Þýski boltinn 02. maí. 2012 22:30

Raul og barnastóðið

Þjóðverjar eru höfðingjar heim að sækja og þeir koma fram við sitt fólk af virðingu. Þegar...  

Meira
Þýski boltinn 28. apr. 2012 15:17

Hertha Berlín og Köln féllu | Barrios með þrennu

Stuðningsmenn Herthu Berlínar og Kölnar eiga um sárt að binda þess stundina en lið þeirra ...  

Meira
Þýski boltinn 26. apr. 2012 18:00

Olic fer til Wolfsburg í sumar

Markamaskínan Ivica Olic er á förum frá FC Bayern í sumar en mun spila áfram í Þýskalandi ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Fótbolti / Þýski boltinn / Hoffenheim búið að selja besta framherjann sinn