Höfða einkamál á hendur þjófum Ólöf Skaftadóttir skrifar 20. júní 2013 13:15
IKEA á Íslandi hefur aukið öryggi í verslun sinni eftir að upp komst um langvarandi, stórfellt fjársvikamál í versluninni fyrr á árinu. Samkvæmt framkvæmdastjóra IKEA, Þórarni Ævarssyni, hyggst IKEA einnig höfða einkamál á hendur þeim aðilum sem frömdu verknaðinn. Lögregla hefur enn ekki gefið út ákæru í málinu. „Við höfum þurft að skerpa á öryggisráðstöfunum hjá fyrirtækinu. Sem dæmi má nefna að nú er alltaf öryggisvörður við kassann, en við höfum gripið til ýmissa annarra ráðstafana,“ segir Þórarinn. „Ég er tregur að skipta skilareglunni út. Mér finnst dapurt að nokkrir óprúttnir aðilar verði til þess að við þurfum að breyta eða herða skilaregluna. Mér finnst sjálfsagt að hægt sé að skila vörum til okkar. Við höfum hugsað þetta fram og tilbaka, en niðurstaðan er alltaf sú að okkur finnst þetta sjálfsagður réttur neytenda,“ Talið er að brotin nái allt að sex ár aftur í tímann. Þau felast einkum í því að strikamerki á ódýrum vörum voru sett á dýrar vörur sem var síðan skilað fyrir inneignarnótur. Inneignarnóturnar voru svo notaðar til þess að kaupa vörur eða þeim breytt í gjafabréf sem auðvelt er að koma í verð.
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Fleiri fréttir Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Sjá meira