Fótbolti

Hodgson: Get ekki leynt vonbrigðum mínum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Roy Hodgson, landsliðsþjálfari Englands, gat ekki leynt vonbrigðum sínum með markalaust jafntefli gegn Slóvakíu í B-riðli EM í Frakklandi.

Úrslitin þýða að England endaði í öðru sæti riðilsins og er öruggt áfram í 16-liða úrslitin. Englendingar munu leika við liðið sem endar í öðru sæti F-riðils, riðli Íslands.

„Við fengum færin og voru miklu meira með boltann. En við náðum ekki að skora og ég get ekki leynt vonbrigðum mínum með það,“ sagði Hodgson eftir leikinn í kvöld.

„Ég held að þetta muni koma. Við erum með leikmenn sem geta skorað og munu skora.“

Hodgson tók við fáum spurningum frá ensku pressunni og varðist þeim, ef honum fannst að í þeim fælist gagnrýni.

Hann var til dæmis spurður hvort það hefði verið of mikil áhætta að gera sex breytingar á byrjunarliðinu, sem hann gerði fyrir leikinn í kvöld.

„Hvað hefði breyst? Hefði Wayne Rooney skorað ef hann hefði spilað frá upphafi? Hann kom inn á, Harry Kane og Dele Alli komu inn á. Það er ekki hægt að stilla þessu svona upp. Þessir leikmenn komu allir inn á og við sóttum stíft allt til loka.“

„Við áttum skilið að vinna leikinn. Við vorum betri í öllum þremur leikjunum okkar í riðlinum og við höfum verið gagnrýndir fyrir að nýta ekki færin okkar. Ég get ekkert sagt við því.“

Hann var líka spurður um frammistöðu Jack Wilshere en Hodgson sagði þá að í spurningunni fælist sú staðhæfing að hann hefði ekki staðið sig vel með landsliðinu að undanförnu.

„Ég tel að hann sé frábær leikmaður sem mun nýtast hópnum afar vel. Það er ljóst að hann var ekki besti maðurinn á vellinum en þú hefðir allt eins getað spurt mig um frammistöðu Jordan Henderson eða Nathaniel Clyne, sem voru frábærir.“

Hann segir reiðubúinn að mæta hvaða lið sem er úr F-riðli í 16-liða úrslitunum. „En við vitum líka að það lið sem við mætum mun fá erfiðan leik gegn okkur,“ bætti hann við.

„Og kannski fáum við lið sem sækir gegn okkur og við getum því fengið tækifæri til að sýna að við erum líka gott skyndisóknarlið.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×