Hnoðuð terta:
300 gr. hveiti
200 gr.smjörlíki
150 gr. sykur
2 teskeiðar lyftiduft
2 egg
500 gr. berjamauk
Hveitið og lyftiduftið er sáldað. Sykrinum og smjörlíkinu blandað saman við. Vætt í með eggjunum og hnoðað unz það er sprungulaust. Skipt i þrjá eða fjóra hluta. Flatt út. Tekið undan kringlóttum diski. Bakað ljósbrúnt við mikinn hita. Kökurnar smyrjist volgar með berjamaukinu og leggist saman.