Handbolti

HM-múrinn hjá íslenskum þjálfurum enn of hár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristján Andrésson stýrði sænska liðinu til sigurs í fimm leikjum af sjö á heimsmeistaramótinu í Frakklandi sem var hans fyrsta stórmót.
Kristján Andrésson stýrði sænska liðinu til sigurs í fimm leikjum af sjö á heimsmeistaramótinu í Frakklandi sem var hans fyrsta stórmót. vísir/Getty
Kristján Andrésson varð fyrr í þessum mánuði fimmtándi íslenski handboltaþjálfarinn sem stýrir landsliði á heimsmeistaramóti karla í handbolta þegar hann mætti með sænska landsliðið til leiks á móti Barein 13. janúar.

Framtíðin er vissulega sænska liðsins en litlu munaði þó á móti Frökkum í átta liða úrslitunum í gærkvöldi þar sem Frakkar höfðu á endanum betur eftir mikinn spennuleik. Undanúrslitin voru innan seilingar og það verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu hjá liðinu. Kristján var síðasta íslenska vonin að komast í gegnum HM-múrinn sem hefur reynst íslenskum þjálfurum svo svakalega erfiður.

Það er ekki hægt að kvarta yfir byrjun Kristjáns enda vann liðið fyrstu sjö leiki sína undir hans stjórn, fyrst tvo leiki í undankeppni EM í nóvember, þá þrjá undirbúningsleiki fyrir HM í upphafi ársins og loks tvo fyrstu leiki sína á HM. Fyrsta tapið kom í leik á móti Dönum 16. janúar þar sem aðeins stórbrotin markvarsla Niklas­ Landin kom í veg fyrir sænskan sigur.

Guðmundur Guðmundson tapaði í 16 liða úrslitum.vísir/getty
Enginn spilað um verðlaun

Danski markvörðurinn varði 23 skot og níu skotum meira en kollegi hans í sænska markinu og Dönum tókst að landa tveggja marka sigri í lokin. Svíar svöruðu þessu tapi með því að vinna næstu þrjá leiki sína með 12,3 mörkum að meðaltali, alla á móti liðum sem fóru í sextán liða úrslit keppninnar. Svíar unnu 19 marka sigur á Hvít-Rússum í sextán liða úrslitunum og mættu svo heimamönnum, Frökkum, í gær.

Íslenskir þjálfarar hafa oftar en einu sinni unnið til verðlauna og komið landsliðum í leiki um verðlaun á Evrópumeistaramótum og Ólympíuleikum. Nú síðast í fyrra unnu Þjóðverjar Evrópumeistaratitilinn undir stjórn Dags Sigurðssonar og Danir urðu Ólympíumeistarar undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar.

Ísland hefur unnið verðlaun á báðum mótum og í bæði skiptin undir stjórn Guðmundar (silfur á ÓL 2008 og brons á EM 2010). Þegar kemur að heimsmeistaramótum hefur annað verið uppi á teningnum.

Fyrir heimsmeistaramótið í Frakklandi höfðu tveir íslenskir þjálfarar komið liðum sínum upp í fimmta sæti en enginn hafði komið liði sínu í leiki um verðlaun.

Dagur kvaddi HM eftir tap gegn Katar.vísir/getty
Þórir sá eini

Íslenska landsliðið náði fimmta sætinu undir stjórn Þorbjarnar Jenssonar á HM í Kumamoto árið 1997 þegar liðið vann sjö af níu leikjum sínum, þar á meðal níu marka sigur á Júgóslövum í riðlinum og níu marka sigur á Spánverjum í leik um sæti. Eina tapið kom á móti Ungverjum í átta liða úrslitunum. Ekki í síðasta sinn sem íslensk handboltahjörtu brustu við tap fyrir Ungverjum.

Guðmundur Guðmundsson náði að jafna árangur Þorbjarnar á HM í Katar fyrir tveimur árum þegar Danir tryggðu sér fimmta sætið með fjögurra marka sigri á Króötum. Danska liðið hafði dottið út úr átta liða úrslitunum eftir eins marks tap á móti Spáni en það var eina tap liðsins á mótinu.

Þorbjörn hafði fyrir tæpum tuttugu árum bætt met þeirra Hallsteins Hinrikssonar (6. sæti á HM 1961) og Bogdans Kowalczyk (6. sæti á HM í Sviss 1986) en Þorbjörn Jensson var einmitt fyrirliði íslenska liðsins sem náði sjötta sætinu á HM í Sviss fyrir rúmum þrjátíu árum síðan.

Íslenskur handboltaþjálfari hefur þó vissulega stýrt liði til sigurs á heimsmeistaramóti. Undir stjórn Þóris Hergeirssonar hefur norska kvennalandsliðið orðið heimsmeistari tvisvar sinnum, unnið þrenn verðlaun á heimsmeistaramóti og spilað um verðlaun á þremur af fjórum heimsmeistaramótum undir stjórn Selfyssingsins. Versti árangur hans á heimsmeistaramóti, 5. sæti á HM í Serbíu 2013, er áfram besti árangur íslensks þjálfara á HM karla.

Besta gengi íslensks þjálfara í sögu HM karla í handbolta

5. sæti

Þorbjörn Jensson á HM í Kumamoto 1997

Guðmundur Guðmundsson með Danmörku á HM í Katar 2015

6. sæti

Hallsteinn Hinriksson á HM í Vestur-Þýskaland 1961

Bogdan Kowalczyk á HM í Sviss 1986

Guðmundur Guðmundsson á HM í Svíþjóð 2011

Kristján Andrésson með Svíþjóð á HM í Frakklandi  2017

7. sæti

Guðmundur Guðmundsson

á HM í Portúgal 2003

Dagur Sigurðsson

með Þýskaland á HM í Katar 2015

8. sæti

Þorbergur Aðalsteinsson á HM í Svíþjóð 1993

Alfreð Gíslason á HM í Þýskalandi 2007

9. sæti

Karl G. Benediktsson á HM í Tékkóslóvakíu 1964

Dagur Sigurðsson með Þýskaland á HM í Frakklandi 2017

10. sæti

Hallsteinn Hinriksson á HM í Vestur-Þýskaland 1958

Bogdan Kowalczyk á HM í Tékkóslóvakíu 1990

Guðmundur Guðmundsson með Danmörku á HM í Frakklandi 2017


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×