Handbolti

HM í dag: Óvænt víkingaklapp frá Túnisbúum

Ísland spilar gríðarlega mikilvægan leik við Túnis á HM í dag og Túnisbúar koma mikið við sögu í þætti dagsins.

Þátturinn var tekinn upp í gærkvöldi eftir leik Spánverja og Túnisbúa. Arnar Björnsson og Henry Birgir Gunnarsson spáðu þá í spilin á leið sinni heim úr keppnishöllinni.

Fjöldi Túnisbúa er mættur til Metz og þeir voru á einnig á leið heim úr höllinni er þátturinn var tekinn upp. Höfðu þeir mikinn áhuga á að komast í sjónvarp á Íslandi eins og sjá má í þættinum.

Leikurinn hefst svo klukkan 13.45 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Arnór: Síðasti tapaði boltinn situr í mér

"Það er svolítið vonleysi og svekkelsi núna,“ segir Arnór Atlason sem átti magnaðan leik fyrir Ísland í kvöld. Stýrði sóknarleik íslenska liðsins af myndarskap og öll fjögur skot hans fóru í markið.

Vujovic: Framtíð íslenska liðsins er björt

"Ég veit ekki hvað skal segja,“ sagði þjálfari Slóvena, Veselin Vujovic, gjörsamlega búinn á því eftir hinn magnaða leik Íslands og Slóveníu í dag. Drengir Vujovic skriðu út úr höllinni með tvo punkta en það hefði ekki verið mjög ósanngjarnt ef Ísland hefði fengið annað stigið.

Bjarki: Líður alltaf vel er ég spila handbolta

Bjarki Már Elísson er búinn að bíða lengi eftir sínu fyrsta tækifæri á stórmóti og það kom frekar óvænt í dag. Óhætt er að segja að Bjarki hafi nýtt tækifærið vel því hann fór á kostum gegn Slóvenum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×