Körfubolti

Hlynur: Þeir labba ekki á vatni frekar en við hinir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlynur Bæringsson.
Hlynur Bæringsson. Vísir/Valli
Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska körfuboltalandsliðið mun leiða sitt lið inn í sögulegan leik á morgun þegar Ísland mætir Þýskalandi í fyrsta leik liðsins á Eurobasket.

„Ég veit ekki alveg ennþá hvernig þetta lítur út. Það verður bara að koma í ljós því þetta er eitthvað sem ég hef ekki upplifað áður. Ég hlakka mikið til að sjá þetta," segir Hlynur í samtali við Vísi.

„Við þurfum núna að reyna að koma huganum á rétt ról þannig að allir nái sínu besta fram. Það skiptir rosalega miklu máli þegar maður er ekki vanur að vera í þessari stöðu að hafa hugarfarið rétt. Ég held að það getir verið stór munur hjá mönnum," segir Hlynur.

Hann og leikmenn íslenska liðsins eru á sama hóteli og hin liðin og eru því að mæta NBA-stjörnunum í matsalnum sem og annars staðar á hótelinu.

Hér eru mun stærri stjörnur

„Yfirleitt truflar það mann ekki að vera í kringum stjörnuleikmenn en þó verður maður að sjálfsögðu að viðurkenna það að þetta er sérstakara en önnur mót. Hér eru mun stærri stjörnur og allt miklu stærra. Ég viðurkenni það alveg að það var mjög sérstakt að mæta Dirk Nowitzki. Þetta er auðvitað spes en það var ágætt að við komum snemma þannig að maður er kannski búinn að venjast þessu smá núna," segir Hlynur.

Hvað þarf að ganga upp á móti Þjóðverjum í dag?

„Ég vona að við náum okkar allra besta leik og að við getum nýtt okkur nokkra veikleika í þeirra leik. Það er annað sem við megum hugsa um. Þótt að við séum lægst settir í þessum riðli af öllum sem er að fjalla um þetta þá megum við ekki gleyma því að öll hin liðin hafa veikleika þótt að þau séu með stórar stjörnur," sagði Hlynur.



„Við berum mikla virðingu fyrir þeirra ferli og öllu sem þeir hafa gert. Þeir labba ekki á vatni frekar en við hinir," sagði Hlynur.

Alveg örugglega stærsta stundin á ferlinum

„Til þess að við náum sigri á þessu móti þá þarf allt að ganga upp. Það er draumurinn. Við þurfum að hitta mjög vel á móti Þjóðverjum og þurfum helst að geta dregið stóru mennina þeirra út úr teignum. Við þurfum líka að hitta vel úr vítum, ekki gefa þeim auðveldar körfur úr hraðaupphlaupum og vera agaðir þegar það á við. Það er margt sem þarf að ganga upp,“ segir Hlynur og hann er tilbúinn fyrir sögulegan leik á morgun.

„Þetta er alveg örugglega stærsta stundin á mínum ferli og það er mikil tilhlökkun. Þetta verður fjör,“ segir Hlynur.


Tengdar fréttir

Hörður: Allt mér að þakka að Haukur er hér í dag

Fréttamaður Vísis í Berlín hitti á landsliðsmennina Hauk Helga og Hörð Axel fyrir leik liðsins gegn Þýskalandi á morgun. Strákarnir voru léttir í lund og rifjuðu meðal annars upp þegar Hörður var þjálfari Hauks í Fjölni.

Pavel: Við unnum ekkert lottó til að vera hérna

Pavel Ermolinskij, leikstjórnandi íslenska körfuboltalandsliðsins, er klár í slaginn á Evrópumótinu og segir að íslenska liðið eigi fyllilega skilið að keppa við þá bestu í ár.

Ljóðskáldið Axel Kárason

Ísland hefur leik á EM í körfubolta á morgun þegar liðið mætir Þýskalandi í Mercedes Benz-höllinni í Berlín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×