Lífið

Hlynur hefur ákveðið að leggja karakterinn Mr - Ice á hilluna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hlynur heitir bara Hlynur í dag.
Hlynur heitir bara Hlynur í dag.
Listamaðurinn Mr - Ice gaf á dögunum út splunkunýtt lag sem ber nafnið Ég er hér. Maðurinn á bakvið Mr – Ice heitir í raun og veru Hlynur Jónsson og er 35 ára Akureyringur.

Hann segir frá því á Twitter að hann hafi ákveðið að hætta með karakterinn Mr – Ice.

„Hef ákveðið að icefit(Mrice) sé nú er timi að vera maður sjálfur og leggja þessum karakter sem er algjör andstæða mín en gaman var það,“ segir Hlynur á Twitter en spurning hvort það komi meira efni frá honum í framtíðinni.

Áður var listamannanafn hans Icefit en nýlega stytti hann nafnið í Mr – Ice.

Lagið sem kom út á dögunum





Fleiri fréttir

Sjá meira


×