Golf

Hlynur Geir lék frábært golf – með þriggja högga forskot

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlynur Geir Hjartarson.
Hlynur Geir Hjartarson. Mynd/Golfsamband Íslands
Hlynur Geir Hjartarson úr Golfklúbbi Selfoss er efstur í karlaflokki eftir fyrsta hringinn á Securitasmótinu á Eimskipsmótaröðinni sem fram fer í Vestmannaeyjum.

Hlynur Geir lék á -5 eða 65 höggum og er hann með þriggja högga forskot á næstu keppendur.

Alls léku fimm kylfingar undir pari á Vestmannaeyjavelli í morgun.

Aðstæður eru mjög góðar og líklegt að gott skor líti dagsins ljós eftir hádegi þegar síðari umferð dagsins fer fram.

Lokahringurinn fer fram á morgun, laugardag.

Staða efstu manna í karlaflokki:

1. Hlynur Geir Hjartarson, GOS 65 högg -5

2. – 4.  Theodór Emil Karlsson, GM 68 högg -2

2. – 4. Benedikt Sveinsson, GK 68 högg -2

2. – 4. Stefán Þór Bogason, GR 68 högg -2

5. Ragnar Már Garðarsson, GKG 69 högg -1

6. – 8.     Aron Snær Júlíusson    GKG 70 högg (par)

6. – 8. Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR 70 högg (par)

6. – 8. Henning Darri Þórðarson, GK 70 högg (par)

9. – 12. Haraldur Franklín Magnús, GR 71 högg +1

9. – 12. Andri Þór Björnsson, GR 71 högg +1

9. – 12. Sigurþór Jónsson, GK 71 högg +1

9. – 12. Lárus Garðar Long, GV 71 högg +1


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×