Handbolti

Hlynur: Vissum hvað við þyrftum að gera fyrir þau

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hlynur ásamt Sigursteini Arndal, aðstoðarþjálfara, og systur sinni.
Hlynur ásamt Sigursteini Arndal, aðstoðarþjálfara, og systur sinni. vísir/brynja traustadóttir
Hlynur Bjarnason, fyrirliði Íslands skipað leikmönnum nítján ára og yngri, var í skýjunum með sigur liðsins á opna Evrópumeistaramótinu sem fram fór í Gautaborg í gær. Ísland vann Svíþjóð í úrslitaleiknum fyrir framan sjö þúsund manns.

„Tilfinningin var ótrúlegt. Með allan þennan fjölda af Íslendingum í stúkunni var ekki hægt annað en að landa þessum titli í fyrsta sinn í sögu Íslands," sagði Hlynur í samtali við Vísi.

Staðan í hálfleik var 13-10 fyrir heimamönnum, en í síðari hálfleik seig íslenska liðið fram úr og náði mest þriggja marka forystu. Lokatölur urðu 31-29 sigur Íslands.

„Þeir voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik og voru skrefinu á undan, en sigurviljinn hjá okkur með þennan stuðning á bakinu fékk okkur til þess að súa leiknum í hag. Við áttum algjörlega seinni hálfleikinn."

Tæplega þúsund Íslendingar voru á leiknum, en margir þeirra eru við keppni á Partille Cup og studdu vel við bakið á íslenska liðinu.

„Okkar fólk var frábært í stúkunni. Við viljum þakka öllum sem komu á leikinn. Um leið og þjóðsöngurinn byrjaði og að heyra í þessu fólki syngja með vissum við hvað við þyrftum að gera fyrir þau."

„Þetta var stórt skref í undirbúningi okkar fyrir HM. Við viljum halda markmiðunum okkar fyrir okkur, en aðalmarkmiðið er að njóta þess að spila saman og hafa gaman."

„Við eigum bara tvö ár eftir saman sem hópur og við viljum njóta þess að spila góðan handbolta saman."

Hlynur lék á síðustu leiktíð sem lánsmaður hjá Elverum í Noregi, en hann er fæddur og uppalinn í Kaplakrika. Hlynur segir að hann snúi nú aftur heim.

„Ég er kominn heim frá Noregi og mæti í Kaplakrika aftur. Ég er afar spenntur fyrir komandi tímabili," sagði Hlynur að lokum í samtali við Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×