Körfubolti

Hlynur: Síðasta tækifærið fyrir okkur eldri karlana

Óskar Ófeigur Jónsson í London skrifar
Hlynur Bæringsson í leiknum gegn Bretum á dögunum.
Hlynur Bæringsson í leiknum gegn Bretum á dögunum. Víisr/Vilhelm
Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, hefur spilað marga stórleiki á ferlinum en þeir verða varla stærri en leikurinn í kvöld þegar íslenska landsliðið getur komist langleiðina inn á EM með sigri á Bretum í London.

„Þetta er pottþétt sá stærsti á ferlinum og sá mikilvægasti með leikjunum til að vinna titlana," sagði Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska körfuboltalandsliðsins sem mætir Bretlandi á London á morgun en sigur kemur liðinu nánast örugglega inn á EM.

„Ef þetta tekst þá verður þetta örugglega hápunkturinn. Það er mikil löngun og við gerum allt til þess að láta þennan draum verða að veruleika," sagði Hlynur en hvernig verður spennustigið hjá liðinu í þessum mikilvæga leik.

„Byrjunin gæti snúist um að stilla spennustigið og það er alveg eðlilegt. Það gæti líka hjálpað okkur seinna í leiknum ef við náum að komast út úr stressinu sem verður pottþétt í upphafi leiks. Þá gætum við verið rétt stilltir, með hátt tempó og háan mótor," sagði Hlynur og bætti við:

„Ég verð pottþétt smá stressaður þangað til fyrsta karfan fer ofan í. Það er oft þannig," sagði Hlynur. Hlynur fékk á sig sína fyrstu villu eftir aðeins nokkrar sekúndur í tapleiknum í Bosníu og komst aldrei almennilega í takt við leikinn.

„Það var mjög erfitt enda leikur sem var nógu erfiður fyrir. Það fáa sem gekk upp hjá manni var flautað af. Það er mjög þægilegt að skora snemma en það er mjög erfitt á móti sterkum þjóðum að þurfa ennþá að vera að reyna að finna sig í þriðja leikhluta. Við skulum vona að það verði ekki í þessum leik," sagði Hlynur.

Hvað breytir það fyrir íslenska liðið að fá Jón Arnór Stefánsson inn fyrir þennan mikilvæga leik við Breta?

„Ég held að það breyti ekki miklu því við verðum bara betri heilt yfir. Jón hefur allan sinn feril verið frábær liðsmaður í vörn og sókn. Auðvitað spilar hann stærra hlutverk í sókninni hjá okkur heldur en í sínum liðum. Þrátt fyrir hans velgengni hefur Jón aldrei verið með einhverja stjörnustæla og það væri meira mál að setja þannig menn inn í liðið. Hann hefur alltaf verið tipp topp liðsmaður og hann gerir okkur bara betri. Hann breytir samt ekkert rosalega miklu," sagði Hlynur. Hvað þarf að gerast til þess að Ísland vinni Bretland í Koparkassanum í kvöld?

„Við þurfum bara að spila vel til að vinna þennan leik. Oft áður þegar við höfðum átt möguleika þá hafa menn mikið verið að velta sér upp úr ef og hefði og að þetta þarf að gerast. Þeir eru alveg með gott lið og eru betri á heimavelli en menn þurfa ekki að setja pressu á sig að eiga ofboðslega góðan leik," sagði Hlynur.

„Við þurfum að spila okkur leik, vera rétt stemmdir og góðir. Þá held ég að við klárum þetta," sagði Hlynur. „Það er rosalega mikið undir. Fyrir okkur sem erum orðnir aðeins eldri í þessu þá er þetta síðasti sjensinn í raun og veru. Við fengum smá sjens í fyrra og það tókst ekki. Þetta er síðasti möguleikinn og við ætlum að nýta hann," sagði Hlynur.


Tengdar fréttir

Logi: Við erum allir eins og bræður

Logi Gunnarsson, leikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins, er harður á því að leikurinn á móti Bretum í kvöld sé sá stærsti á ferlinum ásamt því að hrósa liðsheildinni í íslenska landsliðinu.

Haukur Helgi: Við ætlum okkur á EM

Haukur Helgi Pálsson ætlar ekki að láta meiðsli stoppa sig frá því að spila leikinn gegn Bretum í London í kvöld. Haukur lenti í töluverðum vandræðum út í Bosníu á dögunum vegna meiðsla og vinnuvandræða en liðsfélagar hans stigu upp í fjarveru hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×