Körfubolti

Hlynur: Höfðum alltaf trú á þessu

Ingvi Þór Sæmundsson í Laugardalshöll skrifar
Hlynur var frábær í undankeppninni.
Hlynur var frábær í undankeppninni. mynd/bára dröfn kristinsdóttir
„Tilfinningin er rosalega góð. Mig grunaði aldrei að landsliðsferilinn myndi enda með því að fara tvisvar á EM,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Hlynur Bæringsson eftir sigurinn á Belgum í dag.

„Auðvitað vorum við svolítið stressaðir í restina, þó það nú væri. Við vorum að um spila eitthvað sem skiptir okkur miklu máli. Sem betur fer hafðist þetta.“

Íslenska liðið var í vandræðum í sókninni í fyrri hálfleik og skotnýtingin var afar slæm. Hlynur skrifar það á taugatitring.

„Við vorum svolítið stressaðir til að byrja með og það er alveg eðlilegt. En eftir að við jöfnuðum okkur á því og komum til baka vorum við með leikinn,“ sagði Hlynur.

Ísland jafnaði metin í 34-34 undir lok fyrri hálfleiks en fékk svo þrist í andlitið í kjölfar rangs dóms.

„Það var smá kjaftshögg en augnablikið var með okkur,“ sagði Hlynur. Fyrirliðinn segir að íslenska liðið hafi alltaf haft trú á því að það gæti komist á EM, jafnvel eftir tapið fyrir Sviss á útivelli.

„Já, það var aðallega út af leiknum við Belgíu úti. Við stóðum í þeim og gátum spilað við þá. Við vissum samt að þetta yrði erfitt,“ sagði Hlynur sem segir afar gott að spila með Kristófer Acox sem kom eins og stormsveipur inn í íslenska liðið í undankeppninni.

„Hann hefur komið frábærlega inn í þetta. Hann er mjög sérstök týpa í íslenskum körfubolta, mikill íþróttamaður og það er gaman að spila með honum. Þetta er góður drengur og framtíðin er hans,“ sagði Hlynur að endingu.


Tengdar fréttir

Ísland tryggði sig inn á Eurobasket | Myndaveisla

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tryggði sér sæti á Evrópumeistaramótið í körfubolta á næsta ári þegar liðið lagði Belgíu 74-68 í Laugardalshöllinni í kvöld.

Kristófer: Shout-out á Guðna

Kristófer Acox kom eins og stormsveipur inn í íslenska landsliðið í undankeppni EM 2017. Hann fékk ekki leyfi til að fara á EM í fyrra en ætlar að sjálfsögðu að vera með á næsta ári.

Jón Arnór: Sérstakt að gera þetta tvisvar í röð

Jón Arnór Stefánsson skoraði síðustu fjögur stig Íslands í sigrinum á Belgíu í Laugardalshöllinni í dag. Með sigrinum tryggði Ísland sér sæti á EM, annað skiptið í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×