Innlent

Hlýjasti dagur ársins framundan á höfuðborgarsvæðinu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Það er góður dagur til að skella sér í sund í dag.
Það er góður dagur til að skella sér í sund í dag. vísir/ernir
„Jú, það eru góðar líkur á að hitinn fari upp í 20 gráður hér sunnan-og vestanlands í dag. Það er orðið svo hlýtt nú þegar, til dæmis komið í 18 gráður á Kjalarnesi þannig að þetta hlýtur að ná 20 gráðum,“ segir Þorsteinn V. Jónsson, vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.

Yrði þá um hlýjasta dag ársins að ræða á höfuðborgarsvæðinu þar sem hitinn hefur ekki náð 20 gráðum þar í sumar. Þorsteinn segir að þó að sumarið hafi verið ágætt á Suður-og Vesturlandi þá hafi ekki verið neitt sérstaklega hlýtt. Hins vegar hafi verið nokkuð þurrt.

Í gær fór hiti á landinu víða yfir 20 gráður og var hlýjast norðaustanlands. Mestur var hitinn á Mánárbakka, nærri Húsavík, eða 22,3 gráður. Þorsteinn segir að það sé mesti hiti sem mælst hefur á landinu það sem af er á ári en segir erfitt að spá fyrir um hvort að hitinn verði jafnmikill á Suður-og Vesturlandi í dag.

Á Torfum, nærri Akureyri, fór hitinn í 21,9 gráður í gær, 21,8 gráður í Ásbyrgi og 21,7 gráður á Möðruvöllum.

 

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Gert er ráð fyrir austlægri átt á landinu öllu í dag og reiknað með hita á bilinu 13 - 21 stigi að deginum. Á suðvestanverðu landinu má gera ráð fyrir síðdegisskúrum, en þykknar upp norðan- og austanlands þegar líður á kvöldið með dálítilli súld.

Á miðvikudag gengur í norðaustan átt með talsverðri rigningu og verður áframhald á norðan áttinni út vikuna. Það mun því kólna og þá sérstaklega um komandi helgi þar sem mun jafnvel slydda til fjalla. Spáin fyrir laugardag gerir ráð fyrir svölu veðri, einkum fyrir norðan og hætt við næturfrosti inn til landsins.

Nánar á veðurvef Vísis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×