Tónlist

Hlýddu á framlag fyrrverandi borgarstjóra til Eurovision

Bjarki Ármannsson skrifar
Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri, hefur sent frá sér nýtt lag sem sungið er af Páli Rósinkrans og ber heitið Nánd. Lagið samdi Ólafur fyrir undankeppni Eurovision en það var ekki meðal þeirra laga sem valin voru í keppnina að þessu sinni.

Vísir hefur að undanförnu greint frá ötulli lagasmíði stjórnmálamannsins fyrrverandi, en hann reglulega samið og tekið upp dægurlög að undanförnu, oft í samstarfi við tónlistarmennina Gunnar Þórðarson og Vilhjálm Guðjónsson.

Þetta er í annað sinn sem Ólafur sendir lag í undankeppni Eurovision. Árið 2014 sendi hann lagið Fjallkonuna, sem einnig var sungið af Páli. Það lag hlaut ekki náð fyrir augum dómnefndar, frekar en lagið Nánd nú, og sagðist Ólafur þá efast um að dómnefndin hefði hlustað á lagið.

Ólafur samdi bæði lag og texta við Nánd, sem heyra má í heild sinni í spilaranum efst í þessari frétt.  


Tengdar fréttir

Ólafur F. hefur aldrei verið hamingjusamari

Læknirinn og fyrrverandi borgarstjórinn Ólafur Friðrik Magnússon hefur á undanförnum vikum sent frá sér tvö ný lög, sem hann bæði semur og syngur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×