Viðskipti innlent

Hlutur TM hækkað yfir 70 prósent í verði

Kristinn Ingi Jónsson skrifar
Hlutur TM í Stoðum er langsamlega stærsta fjárfestingareign tryggingafélagsins.
Hlutur TM í Stoðum er langsamlega stærsta fjárfestingareign tryggingafélagsins. Vísir/Anton Brink
Virði óbeins eignarhlutar tryggingafélagsins TM í drykkjarframleiðandanum Refresco Group hefur hækkað um meira en 70 prósent frá því að félagið eignaðist hlutinn á öðrum fjórðungi síðasta árs.

Hluturinn var metinn á 2.156 milljónir króna í bókum tryggingafélagsins í lok ársins en til samanburðar var hann metinn á 1.768 milljónir í septemberlok. Hafði bókfært virði hans þá þegar hækkað um ríflega 500 milljónir.

TM á óbeint 1,1 prósents hlut í Refresco í gegnum eignarhaldsfélögin S122 og Stoðir. Hluturinn hækkaði umtalsvert í verði eftir að tilkynnt var um yfirtöku fjárfestingasjóðanna PAI Partners og British Columbia Investment Management á drykkjarframleiðandanum, fyrir jafnvirði um 200 milljarða króna, síðasta haust. Samkeppnisyfirvöld samþykktu yfirtökuna í liðinni viku.

TM keypti ásamt hópi fjárfesta 50,2 prósenta hlut í Stoðum, sem á tæp níu prósent í Refresco, af Glitni HoldCo og nokkrum erlendum fjármálastofnunum í apríl á síðasta ári. Hluturinn er langsamlega stærsta einstaka fjárfestingareign TM.

Eins og greint var frá í Markaðinum í janúar stendur vilji til þess hjá stærstu hluthöfum Stoða að halda starfsemi félagsins áfram þegar yfirtakan á Refresco klárast. Við það yrði til stærsta fjárfestingafélag landsins með liðlega átján milljarða króna í eigið fé.


Tengdar fréttir

Hækkaði yfir fimmtíu prósent í virði á hálfu ári

Virði hlutafjár félags sem var stofnað vegna kaupa á hlut í Stoðum hækkaði um 53 prósent á síðari hluta síðasta árs. Á meðal hluthafa er félag Malcolms Walker, stofnanda og eiganda bresku verslanakeðjunnar Iceland Foods.

Hlutur TM í Stoðum metinn á 1,8 milljarða

Eignarhlutur tryggingafélagsins TM í eignarhaldsfélaginu Stoðum, áður FL Group, var metinn á tæpa 1,8 milljarða í bókum félagsins í lok júnímánaðar. Hluturinn er langsamlega stærsta einstaka fjárfestingareign félagsins.

Virði hlutar TM í Refresco hækkar um 300 milljónir króna hið minnsta

Óhætt er að gera ráð fyrir að virði óbeins eignarhlutar tryggingafélagsins TM í evrópska drykkjaframleiðandanum Refresco Group hækki um að minnsta kosti 300 milljónir króna við yfirtöku fjárfestingarsjóða á framleiðandanum. Þetta kom fram í máli Sigurðar Viðarssonar, forstjóra TM, á kynningarfundi með fjárfestum í síðustu viku.

200 milljarða yfirtökutilboð í Refresco

Fjárfestingasjóðurinn PAI Partners gerði í morgun 1,6 milljarða evra yfirtökutilboð í evrópska drykkjarvöruframleiðandann Refresco Group, en stærstu einstöku hluthafar þess eru íslenskir fjárfestar og fyrirtæki. Jafngildir það um 198 milljörðum króna.

Stoðir að verða stærsta fjárfestingafélag landsins

Rekstri Stoða, áður FL Group, verður ekki hætt þegar salan á Refresco klárast á öðrum ársfjórðungi. Vilji meirihluta hluthafa stendur til að halda starfseminni áfram. Til verður fjárfestingafélag með um átján milljarða króna í eigið fé.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×