Bíó og sjónvarp

Hlutu tæpa milljón í stuttmyndahugmyndakeppni í Cannes

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Anna Sæunn, Eva Sigurðardóttir, Þóra Hilmarsdóttir, Snjólaug Lúðvíksdóttir og Júlíanna Lára Steingrímsdóttir sem mun sjá um búninga og leikmynd.
Anna Sæunn, Eva Sigurðardóttir, Þóra Hilmarsdóttir, Snjólaug Lúðvíksdóttir og Júlíanna Lára Steingrímsdóttir sem mun sjá um búninga og leikmynd.
„Við erum náttúrulega í skýjunum,“ segir Anna Sæunn Ólafsdóttir. Hún, ásamt þremur öðrum, stendur að baki undirbúning á stuttmyndinni Frelsun (e. Salvation). Hugmyndin bar sigur úr bítum í keppni sem haldin er úti í Cannes og fær að launum fimmþúsund evrur.

Auk Önnu kemur Eva Sigurðardóttir að framleiðslu en Eva á og rekur framleiðslufyrirtækið Askja films. Snjólaug Lúðvíksdóttir skrifar handritið að myndinni ásamt leikstjóranum Þóru Hilmarsdóttur. Stuttmynd Þóru, Sub Rosa, var til að mynda tilnefnd til Edduverðlauna.



„Þú hefur sumsé tvær mínútur til að selja hugmyndina þína. Í kjölfarið var haldin netkosning milli tuttugu hugmynda og efstu fimm hugmyndirnar fóru fyrir sérstaka dómnefnd sem skar úr um sigurvegara,“ segir Anna. Keppnin er haldin samhliða Cannes-hátíðinni af fyrirtæki sem heitir Shorts.TV og sérhæfir sig í stuttmyndum.

Aðspurð segir Anna að stefnt sé að því að hefja gerð myndarinnar í vetur en enn sé ekki komin nákvæm tímasetning á það. Hægt er að sjá upptöku af söluræðu Önnu hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×