Tíska og hönnun

Hlutir sem hafa tengingu við mannslíkamann heilla mig

Marín Manda skrifar
María Kristín Jónsdóttir vöruhönnuður.
María Kristín Jónsdóttir vöruhönnuður.
María Kristín Jónsdóttir vöruhönnuður sýnir fylgihlutalínuna sína, Staka í versluninni 38 þrep á Laugavegi á Hönnunarmars .

Hún útskrifaðist sem vöruhönnuður úr LÍH árið 2003 en ákvað fyrst að verða hönnuður eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn. „Það var þá sem ég fann að þetta væri það sem mig langaði að gera,“ segir María Kristín sem kynnti sína fyrstu fylgihlutalínu undir nafninu Staka á Hönnunarmars árið 2012.

Áður hefur hún hannað fylgihlutalínuna Þráð sem er seld í Spark Design Space. Að þessu sinni er hún með sýningu í versluninni 38 þrep á Laugavegi 49.

„Hugmyndin á bak við Stöku er upprunalega sprottin upp úr Íslendingasögunum en til varð ímyndaður íslenskur ættbálkur, eins konar hirðingjar sem búa hvergi en eru á ferðinni og takast á við stórbrotna náttúruna í leiðinni. Í þessari vinnu minni hef ég sett mig í spor þeirra og hannað fylgihluti úr leðri sem eru léttir og auðvelt er að pakka saman.“

Línan er unnin úr leysiskornu leðri í mismunandi stærðum sem mótað hefur verið í armbönd og hálsmen. Nafnið Staka þýðir skinn af dýri eða stök vísa úr kvæði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×