Viðskipti innlent

Hluti starfsemi CCP verði fluttur úr landi

Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar
Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP
Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP
Tölvufyrirtækið CCP er hugar að því hvort flytja eigi hluta starfseminnar úr landi. Málið var rætt á ársfundi fyrirtækisins í síðustu viku, en þá er sérstaklega horft til stjórnunarstaða. Engar ákvarðanir hafa verið teknar, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins stendur ekki til að draga úr starfsemi hér og gegnir Ísland áfram lykilhlutverki hjá fyrirtækinu.

Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP, segir að fyrirtækið hafi ekkert um málið að segja á þessu stigi. „No comment,“ segir hann spurður hvort flutningur sé fyrirhugaður og hafi verið ræddur á ársfundinum.

Fyrirtækið hefur af og til skoðað það á síðustu árum hvort það henti betur að flytja höfuðstöðvarnar úr landi. Heimildir Fréttablaðsins herma að sú skoðun sé enn í fullum gangi og meiri kraftur hafi farið í hana að undanförnu. Engar ákvarðanir hafa þó verið teknar.

Gjaldeyrishöftin spila stórt hlutverk í þessum mögulegu áformum, en heimildir Fréttablaðsins herma að þau séu síður en svo eina ástæðan. Alþjóðlegir samningar fyrirtækisins séu þannig að það gæti hentað því betur að vera með höfuðstöðvarnar annarsstaðar en á Íslandi.

Heimildir herma að á meðal mögulegra áfangastaða séu kanadísku borgirnar Toronto og Vancouver, en einnig borgir í Bandaríkjunum og Evrópu. Fulltrúar fjölda borga og landsvæða hafa komið að máli við fyrirtækið og boðið því að flytja starfsemi sína þangað.

Hjá CCP starfa um 320 manns á alþjóðavísu og þar af um 220 manns á Íslandi.

Gjaldeyrishöftin hafa gert það að verkum að erfiðara er að fá hæfileikaríkt fólk til að flytja til landsins og halda í það. Þá hafa alþjóðlegir fjárfestar sett spurningamerki við fyrirtæki sem starfa í höftum, CCP sem önnur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×