Innlent

Hluti samnings S.Þ. um réttindi fatlaðra orðinn að lögum

Heimir Már Pétursson skrifar
Alþingi samþykkt lög í gær sem innleiða hluta samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra. Þingmenn komu forseta Alþingis á óvart a afmælisdegi hans.
Alþingi samþykkt lög í gær sem innleiða hluta samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra. Þingmenn komu forseta Alþingis á óvart a afmælisdegi hans.
Hluti samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks varð að lögum frá Alþingi í dag sem og frumvarp um sameiningu Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar. Þá var forseta Alþingis komið á óvart í upphafi þingfundar.

Ný lög um um réttindi fatlaðra sem taka gildi um áramótin hafa það að markmiði  að efla, tryggja og verja mannréttindi og grundvallarfrelsi fatlaðs fólks til jafns við aðra en Ísland fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna í þeim efnum árið 2007.

Þá samþykkti Alþingi einnig í dag lög um sameinungu Hafrannsóknarstofnunar og Veiðimálastofnunar. Með gildistöku laganna hinn 1. janúar næst komandi verður til ný ríkisstofnun, Haf- og vatnarannsóknir.

En þingmenn komu Einari K. Guðfinssyni forseta Alþingis einnig á óvart á sextugs afmæli hans í dag.

Helgi Hjörvar kvaddi sér hljóðs utan dagskrárv í upphafi þingfundar og fór fyrir hönd þingmanna lauslega yfir þingferil Einars allt frá því hann kom fyrst til þings sem varaþingmaður árið 1980. Hann hefði vaxið í starfi sem forseti Alþingis. Forsetastóllinn færi honum vel og það sem meira væri, Einar færi forsetastólnum vel.

Að lokum tóku þingmenn undir árnaðaróskir til þingforseta með því að slá pennum í borð sín. Einar þakkaði þingmönnum undirtektirnar við árnaðaróskir Helga og hét því að láta aldurinn ekki aftra sér í embætti forseta og uppskar við það hlátur þingmanna.

Uppfært klukkan 10:00

Í fyrri útgáfu fréttarinnar var fullyrt að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefði orðið að lögum. Það er rangt. Lesendur eru beðnir afsökunar á þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×