Viðskipti innlent

Hluti af dagskrá Iceland Airwaves verður á Hard Rock í Lækjargötu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hér mun Hard Rock opna í haust.
Hér mun Hard Rock opna í haust. Vísir/Stefán
Nýr Hard Rock-staður opnar í Lækjargötu í haust í húsinu sem áður hýsti Iðu. Er stefnt að því að staðurinn verði opnaður áður en Iceland Airwaves-tónlistarhátíðin hefst í nóvember enda er búið að ganga frá því að kjallari staðarins verði notaður fyrir hluta af dagskrá hátíðarinnar. Hard Rock á Íslandi opnaði fyrst í Kringlunni árið 1987 en lokaði fyrir ellefu árum.

Hönnun staðarins verður í samræmi við nýtt og endurhannað útlit Hard Rock-staðanna og þar af leiðandi talsvert öðruvísi en því  því sem fólk á að venjast á Hard Rock, að því er fram kemur í tilkynningu en Reykjavík verður ein fyrsta borgin þar sem opnar staður með þessu nýja útliti.

Hard Rock í Lækjargötu verður á þremur hæðum á um þúsund fermetrum og mun geta tekið við 250 gestum.

 

„Á jarðhæð nýja staðarins í Lækjargötu verður móttaka og verslun sem selur boli og annan varning merktan Hard Rock. Einnig er gert ráð fyrir að leigja hluta af jarðhæðinni út til ótengds aðila. Það er þó ljóst að þar verður annað hvort verslun eða þjónusta þar sem ekki er leyfi til veitingasölu á jarðhæð. Á annarri hæð hússins verður svo sjálfur Hard Rock veitingastaðurinn með opnu eldhúsi og útsýni yfir miðborgina. Í kjallara hússins verður sérstakur kokteilbar ásamt veitingasal sem einnig verður leigður út fyrir sérstakar uppákomur,“ segir í tilkynningu.

Þannig er stefnt að því að vera með reglulega viðburði í kjallaranum, til dæmist tónleika og uppistand þar sem hljóðkerfið verður með því besta sem völ er á. Þá hefur einnig mikið verið lagt í hönnun og frágang staðarins.

„Stefnt er að því að vera með sérstakan „hall of fame“ frægðarvegg fyrir íslenska listamenn inni á staðnum en sú hugmynd er þó enn á frumstigi. [...]

 

Eigendur Hard Rock á Íslandi eru Eyja fjárfestingarfélag, sem er í eigu Birgis Bieltvedt og Eyglóar Bjarkar Kjartansdóttur, ásamt Högna Sigurðssyni sem leitt hefur hópinn sem stendur að komu Hard Rock hingað til lands. Eyja fjárfestingarfélag er hluthafi í Domino‘s á Íslandi, Joe & the Juice, Snaps, Jómfrúarinnar og Gló,“ segir í tilkynningu.


Tengdar fréttir

Birgir fær einkaleyfi á Hard Rock á Íslandi

Fjárfestirinn Birgir Bieltvedt er kominn með tímabundið einkaleyfi á Hard Rock á Íslandi og íhugar að opna. Ef af verður mun Hard Rock opna á ný hér á landi árið 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×