Viðskipti innlent

Hluthafarnir fá 5,1 milljarð króna í arð

Haraldur Guðmundsson skrifar
Eigendur TM eiga von á 1,5 milljarða króna arðgreiðslu.
Eigendur TM eiga von á 1,5 milljarða króna arðgreiðslu. Vísir/Stefán
Stóru tryggingafélögin þrjú ætla að greiða hluthöfum sínum alls 5.123 milljónir króna í arð vegna reksturs þeirra í fyrra. Samanlagður hagnaður Sjóvár, TM og VÍS var þá 6.746 milljónir króna.

Samkvæmt tilkynningu Sjóvár til Kauphallar Íslands, sem tryggingafélagið sendi frá sér rétt eftir lokun markaða í gær, nam hagnaður af rekstri þess í fyrra 2.690 milljónum. Það er fjórfalt betri niðurstaða en árið á undan þegar afkoman var jákvæð um 657 milljónir króna. Stjórn Sjóvár hefur lagt til að eigendum félagsins verði greiddur arður sem nemur nær öllum hagnaðinum eða 2.600 milljónum. Afkoma TM var örlítið lakari en hjá Sjóvá eða hagnaður upp á 2.597 milljónir og dróst saman um 230 milljónir milli ára. Tryggingafélagið greindi frá niðurstöðunni nokkrum mínútum á eftir Sjóvá en öll þrjú félögin eru skráð á Aðallista Kauphallar Íslands. Stjórnendur TM vilja greiða sínum hluthöfum 1.500 milljónir í arð og verður tillagan borin undir aðalfund félagsins 16. mars næstkomandi.

VÍS rak lestina í gær þegar félagið tilkynnti um 1.459 milljóna hagnað. Niðurstaðan er 617 milljónum lakari en árið 2015. Arðgreiðslutillaga stjórnar VÍS hljóðar upp á 1.023 milljónir króna.

Tillögur félaganna þriggja um útgreiðslu arðs í fyrra vöktu mikla athygli í lok febrúar það ár. VÍS vildi þá greiða hluthöfum sínum fimm milljarða króna eða rúmlega tvöfalt hærri upphæð en sem nam hagnaði félagsins árið 2015. Sjóvá hafði rúmri viku áður boðað 3,1 milljarðs króna arðgreiðslu og TM vildi greiða 1,5 milljarða. Samanlagt ætluðu því tryggingafélögin þrjú að greiða hluthöfum sínum 9,6 milljarða króna í arð. Áformin voru harðlega gagnrýnd, meðal annars af ráðherrum, þingmönnum og Ólafíu B. Rafns­dóttur, formanni VR, annars vegar og Runólfi Ólafssyni, formanni Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), hins vegar. Á endanum lækkaði Sjóvá sína greiðslu í 657 milljónir og VÍS fór niður í 2,1 milljarð. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×