Innlent

Hluthafafundur DV hafinn: Þorsteinn lofar frelsi og Reynir einhverju óvæntu

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Jón Trausti Reynisson, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Guðmundur Sigurðsson, Kolbeinn Þorsteinsson og Reynir Traustason á fundinum sem hófst klukkan 3.
Jón Trausti Reynisson, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Guðmundur Sigurðsson, Kolbeinn Þorsteinsson og Reynir Traustason á fundinum sem hófst klukkan 3. Vísir/Anton
Þorsteinn Guðnason, sem gegndi stöðu stjórnarformanns DV og leiðir nú hóp fjárfesta sem ætla sér að kaupa DV, segir að ef hans áætlanir um að kaupa meirihluta í DV nái í gegn muni enn vera stunduð frjáls fjölmiðlun þar.

Þetta segir hann í snörpu samtali við Vísi, rétt áður en hann hélt á hluthafafund DV sem hófst nú klukkan þrjú í dag og búist er við miklum látum.

„Á meðan ég gegndi stjórnarformennsku í DV kom ég aldrei nálægt efnistökum og mun ekki gera það ef okkar plön ganga eftir. Ekki frekar en að Al Gore fann upp internetið hefur Reynir Traustason einkaleyfi á frjálsri fjölmiðlun og rannsóknarblaðamennsku,“ segir Þorsteinn og bætir við: „DV verður áfram frjálst og óháð.“

Reynir Traustason hefur áður sagt að þessar tilraunir ákveðinna manna til að kaupa meirihluta í DV væru ógn fyrir frjálsa blaðamennsku.

„Ég er svo gáttaður á þessu því ég er búinn að standa í þessu í sjö ár á DV. Ég er búinn að ganga í gegnum tíma þar sem fyrirtækið hefur verið á barmi gjaldþrots og staðan var þannig að við héldum að þetta væri búið. Svo allt í einu þegar fyrirtækið er komið í góðan rekstur og þetta er allt að horfa til betri vegar þá er maður að ganga í gegnum einhverja verstu tíma sem ég man í minni blaðamennsku. Ég hef sjálfur þá skoðun að það sé verið að ógna frjálsri blaðamennsku með þessu," sagði Reynir í frétt Vísis, fyrr í mánuðinum.

Reynir Traustason og Sigurður G. Guðjónsson ræðast við fyrir fundinn.Vísir/Anton
Eitthvað gæti komið á óvart

Þegar Reynir Traustason gekk inn á Hótel Natura fyrir skömmu sagði hann við blaðamann Vísis að hann reiknaði með því að vera ritstjóri DV í kvöld. Það er ólíkt því sem hann sagði í þættinum Harmageddon fyrr í vikunni, en þá sagðist hann reikna með því að hætta sem ritstjóri.

Í gær sagði hann í viðtali við Kastljós að eitthvað gæti komið á óvart á fundinum. Þegar hann var spurður að því áðan hvað það gæti verið sagði hann að fólk yrði bara að bíða þar til fundinum væri lokið.

Sigurður G. Guðjónsson lögmaður og Björn Leifsson sáust einnig ganga inn á fundinn. Hörð barátta er nú í gangi um eignarhald blaðsins.

Björn Leifsson hefur sagt að það sé markmið sitt að koma Reyni Traustasyni frá, hann ætli sér að taka þátt í kaupum á meirihlutablaðsins til að koma sínu markmiði að: „Ef ég get haft einhver áhrif á það að koma Reyni Traustasyni frá þá er það hið besta mál. Hann er stórhættulegur mannorðsmorðingi.“

Sigurður G. Guðjónsson, Björn Leifsson og fleiri á hluthafafundinum á Hótel Natura.Vísir/Anton

Tengdar fréttir

Hafnar ritstjórastöðu hjá DV

Björn Þorláksson, ritstjóri AKV, segir í færslu sinni á Facebook að honum hafi verið boðin staða ritstjóra hjá DV. Þar segir hann jafnframt að hann hafi hafnað tilboðinu.

Lofar fjörugum aðalfundi DV

Í dag verður aðalfundur hlutafélags DV haldinn, þar sem meðal annars verður kosið í nýja stjórn félagsins

Starfsmenn DV áhyggjufullir um stöðu sína

Telja þeir að fráfarandi stjórnarformaður, Þorsteinn Guðnason, sé mótfallinn því að DV greiði málskostnað og bætur vegna málaferla á hendur einstaka blaðamanni.

Reynir reiknar með að hætta á DV á föstudag

Reynir segir um nakta tilraun að ræða til þess að kaupa út tjáningarfrelsið. Með þessu sé Björn að kaupa sér þögn miðilsins, en honum hafi þótt umfjöllun DV um sig óþægileg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×