Hlutafé Emmessíss aukið og endurfjármögnun lokið Haraldur Guðmundsson skrifar 16. mars 2017 07:00 Nýir eigendur Emmesíss vilja efla markaðssókn og auka vöruframboð. vísir/gva
Endurfjármögnun Emmessíss lauk nýverið en nýir eigendur fyrirtækisins hafa lagt því til um 70 milljónir króna síðan í ágúst í fyrra. Rekstur ísframleiðandans hefur verið þungur síðustu ár en framkvæmdastjórinn er bjartsýnn nú þegar sér fyrir endann á fjárhagslegri endurskipulagningu. „Þetta var lokahnykkurinn í heildarhlutafjáraukningu sem hófst í ágúst. Þegar við nýju eigendurnir komum inn var ákveðið að gera það í tveimur skrefum og við keyptum gamla eigandann út í leiðinni,“ segir Ragnar Birgisson, framkvæmdastjóri og einn eigenda Emmessíss. Samkvæmt tilkynningu Emmessíss til fyrirtækjaskrár Ríkisskattstjóra, dagsettri 15. mars, var hlutafé þess aukið um rúmar 20 milljónir króna. Hópur fjárfesta undir forystu Einars Arnar Jónssonar, sem oft er kenndur við Nóatún, eignaðist 90 prósenta hlut í fyrirtækinu í ágúst. Meðlimir hans lögðu þá Emmessís til nýtt hlutafé upp á 50 milljónir króna en fyrirtækið var áður í eigu Sparisjóðabankans (SPB), síðar einkahlutafélagsins SPB, og Eignarhaldsfélagsins Arev. Að sögn Ragnars hefur hópurinn nú einnig keypt síðustu tíu prósentin. „Við höfum verið að endurskipuleggja reksturinn og þá bæði efnahagsreikning og rekstrarreikning. Við höfum aukið hlutafé og straumlínulagað framleiðsluna og fjárfest í bílum, tækjum og tólum. Hlutaféð var meðal annars notað í það og á ýmsum öðrum sviðum,“ segir Ragnar. Í tilkynningu um kaupin á Emmessís í október kom fram að nýir eigendur ætluðu sér að efla reksturinn með vöruþróun og frekari markaðssókn. „Svo ætlum við að kynna ýmsar nýjungar núna í vor og þar standa upp úr tvær vörulínur. Við bindum miklar vonir við þær og til að koma þeim á markað höfum við þurft að fjárfesta í tækjum og búnaði.“ Eigendahópurinn samanstendur af Einari Erni, Þóri Erni Ólafssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sector viðskiptaráðgjafar, Gyðu Dan Johansen, fyrrverandi rekstrarfulltrúa 365 miðla, og Ragnari. Einkahlutafélagið Hnetutoppur, sem var stofnað í júlí í fyrra og er í eigu Einars, Þóris og Gyðu, greiddi 43 milljónir fyrir 77 prósenta hlut í Emmessís í hlutafjáraukningunni í ágúst. Ísframleiðandinn var rekinn með 109 milljóna tapi árið 2015 samkvæmt nýjasta ársreikningi félagsins. Afkoman var neikvæð um 52 milljónir árið 2014 og ári síðar var bókfært eigið fé neikvætt um 150 milljónir. Eignarhaldsfélagið Arev og SPB, sem er að fullu í eigu Eignasafns Seðlabanka Íslands (ESÍ), áttu Emmessís í gegnum samlagshlutafélagið AREV N1. Félagið kom fyrst að rekstri fyrirtækisins árið 2007 þegar Auðhumla svf., móðurfélag Mjólkursamsölunnar (MS), seldi það. MS hafði þá rekið Emmessís frá árinu 1960. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Neytendur Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Viðskipti innlent Hvað er opið um páskana? Neytendur Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Fleiri fréttir Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Sjá meira