Viðskipti erlent

Hlutabréfaverð í Time Warner hrynur

Stefán Ó. Jónsson skrifar
VÍSIR/AFP
Í kjölfar ákvörðunar fjölmiðlafyrirtækins 21st Century Fox að draga 80 milljarða dala, um níu þúsund milljarða króna, yfirtökutilboð í Time Warner til baka hefur hlutabréfaverð í því siðarnefnda fallið um 13 prósent frá því að markaðir opnuðu í morgun.

Þrátt fyrir að hagnaður Time Warner hafi verið framúr væntingum á síðasta ársfjórðungi kom það ekki í veg fyrir hið mikla verðhrun í morgun.

Tekjur Time Warner af sjónvarpstöðinni HBO jukust um 17 prósent á milli ára og má vöxtinn að miklu leyti rekja til vinsælda sjónvarpsþáttanna Game of Thrones en talið er að rúmlega 19 milljón Bandaríkjamenn horfi á þáttinn í hverri viku.

Samkvæmt nýútgefnu ársfjórðungsuppgjöri jukust tekjur 21st Century Fox um 16,8 prósent á milli ára. Vinsældir kvikmyndarinnar X-Men: Days of future past og fjölgun áskrifenda leika þar stærsta rullu.

Áður en tilkynnt var um afturköllun tilboðs 21st Century Fox höfðu verð hlutabréfa í Time Warner hækkað um ríflega 20 prósent á einni viku.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×