Viðskipti erlent

Hlutabréfaverð í Netflix hrynur

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Höfuðstöðvar Netflix.
Höfuðstöðvar Netflix. Wikipedia
Hlutabréfaverð í Netflix hefur  lækkað um 27 prósent eftir að greint var frá því að fyrirtækið hafi verið talsvert frá markmiðum sínum um aukningu áskrifenda. Á þriðja ársfjórðungi tókst Netflix að bæta við sig þremur milljónum áskrifenda en markið hafði verið sett á 3,7 milljónir.

Þá var fyrirtækið einnig talsvert frá markmiði sínu um að ná inn 1,3 milljónum nýjum áskrifendum í Bandaríkjunum, sem er einn mikilvægasti markaður þess. Talið er að verðhækkun á áskriftum vestanhafs um einn dollar, sem tók gildi fyrir fimm mánuðum, sé helsta skýringin á þessu.

„Örlítið hærra verð skilar sér í örlítið hægari vexti,“ sagði Reed Hastings, framkvæmdastjóri Netflix, í bréfi til hluthafa.

Aukin samkeppni hefur færst á streymismarkaðinn að undanförnu og á Netflix undir högg að sækja. Amazon er í virkir samkeppni við fyrirtækið um áskrifendur og HBO tilkynnti í vikunni um áform sín að bjóða áskriftir án kapaláskriftar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×