Viðskipti erlent

Hlutabréf í Twitter rjúka upp

Sæunn Gísladóttir skrifar
Jack Dorsey, stofnandi og framkvæmdastjóri Twitter.
Jack Dorsey, stofnandi og framkvæmdastjóri Twitter. Vísir/EPA
Gengi hlutabréfa í Twitter hefur hækkað verulega það sem af er degi, eða um 11,05 prósent.

Hækkunina má líklega rekja til þess að forsvarsmenn Twitter greindu frá því að mánaðarlegum notendum samfélagsmiðilsins fjölgaði um 6 prósent, eða 18 milljónir, á fyrsta ársfjórðungi, samanborið við árið áður. Mánaðarlegir notendur Twitter nema nú 328 milljónum.

Einnig var greint frá því að daglegum notendum hefði fjölgað um 14 prósent milli ára. Reuters greinir frá því að tekjur Twitter drógust hins vegar saman um 7,8 prósent og námu 548,3 milljónum dollara á fyrsta ársfjórðungi. Tap á rekstri dróst þó saman milli ára og nam 61,6 milljónum dollara, samanborið við 79,7 milljónir dollara árið áður.

Stjórnendur fyrirtækisins, sem og fjárfestar, hafa haft vaxandi áhyggjur af því að notendum var ekki að fjölga nógu hratt síðustu fjórðunga og að samfélagsmiðillinn væri að dragast aftur úr Instagram og Snapchat. Fréttirnar eru því sérstaklega góðar fyrir þennan hóp sem mun líklega nota þetta til að draga að fleiri auglýsendur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×