Bílar

Hlutabréf í Tesla taka dýfu

Finnur Thorlacius skrifar
Tesla Model X.
Tesla Model X.
Hlutabréfaverð rafmagnsbílaframleiðandans Tesla hefur staðið hátt á undanförnum misserum og trú Wall Street á fyrirtækinu hefur endurspeglað mikla trú á framtíð þess. Eitthvað virðist þó vera undan að láta í þeim efnum en í vikunni hefur verð hlutabréfanna fallið talsvert, eða úr 199,17 dollurum í 173,48 í gær.

Það er 13% lækkun á örfáum dögum sem teljast verður nokkuð brött lækkun á örfáum dögum. Hæsta verð bréfanna á síðustu 52 vikum var reyndar 286,65 og því er lækkunin frá hæsta verði mun meiri, eða 40%. Verðið núna er því komið í það sama og í janúar árið 2014, eða fyrir rúmum tveimur árum.

Þessi lækkun á þá helstu útskýringu að Morgan Stanley mat nýlega framtíðarvirði Tesla á 117 dollara sem er gríðarleg lækkun frá fyrri spá uppá 333-450 dollara. Markaðurinn virðist því dansa eftir þessari spá Morgan Stanley nú. Matsfyrirtækið telur að sala bílanna Model X og tilvonandi Model 3 muni ekki ná þeim hæðum sem fyrr var spáð og víst er að mjög lágt bensínverð í Bandaríkjunum á stóran þátt í því, sem og síaukin samkeppni frá öðrum bílaframleiðendum í rafmagnsbílaframleiðslu.

Þá hefur seinkun á útkomu Model X jepplingsins ekki hjálpað uppá og því ákveðin vantrú á framleiðslugetu Tesla. Ef uppgjör Tesla fyrir síðasta ár, sem birt verður á miðvikudaginn næsta verður undir spám gætu hlutabréf í Tesla tekið enn meiri dýfu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×