Viðskipti erlent

Hlutabréf í Deutsche í sögulegu lágmarki

Sæunn Gísladóttir skrifar
Í nótt fór gengi hlutabréfa í Deutsche Bank undir tíu evrur í fyrsta sinn.
Í nótt fór gengi hlutabréfa í Deutsche Bank undir tíu evrur í fyrsta sinn. Vísir/Getty
Gengi hlutabréfa í þýska bankarisanum Deutsche Bank tók dýfu í gær og hélt niðursveiflan áfram fram á nótt. Hlutabréfin fóru undir 10 evrur í fyrsta sinn en hófu að hækka á ný í morgun og mælist nú gengið klukkan hálf tíu 10,4 evrur.

BBC greinir frá því að John Cryan, framkvæmdastjóri bankans, hafi sent starfsmönnum bankans tölvupóst til að fullvissa þá um að bankinn stæði stöðugur. Í póstinum sagði að bankinn hefði aldrei verið í eins sterkri stöðu á síðustu tuttugu árum eins og núna.

Eins og Vísir greindi frá hefur gengi hlutabréfa í bankanum hríðfallið á síðustu vikum eftir að kom í ljós að hann standi frammi fyrir 14 milljarða dollara, 1.600 milljarða króna, sekt af hálfu bandarískra stjórnvalda. Þetta nemur um það bil markaðsvirði félagsins í dag. Forsvarsmenn Deutsche Bank segjast þó ekki hafa í hyggju að borga þessa sektarupphæð.

Misvísandi fregnir hafa svo borist af því í vikunni hvort þýsk stjórnvöld hyggist bjarga bankanum, en líklega mun það skýrast á næstu vikum.


Tengdar fréttir

Sekt lækkar hlutabréf

Á föstudaginn hrundu hlutabréf í Deutsche Bank og lækkaði gengi hlutabréfanna um rúmlega átta prósent.

Virði stærstu banka lækkað um helming

Gengi hlutabréfa í nokkrum af stærstu bönkun Evrópu hefur lækkað um allt að 85 prósent á síðastliðnu ári. Margir bankar komu illa út úr álagsprófi Samtaka evrópskra banka. Sérfræðingar á markaði segja bankana illa fjármagnaða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×