Viðskipti erlent

Hlutabréf í Apple rjúka upp

Sæunn Gísladóttir skrifar
Tim Cook, framkvæmdastjóri Apple, á kynningu á iPhone 7.
Tim Cook, framkvæmdastjóri Apple, á kynningu á iPhone 7. Vísir/AFP
Frá því á föstudaginn hefur gengi hlutabréfa í tæknirisanum Apple hækkað um tæplega 12 prósent. Líklega má rekja þessa hækkun til velgengni nýja flaggskips Apple, iPhone 7 sem kynntur var þann 7. september.

Eins og Vísir hefur greint frá hefur snjallsíminn hefur verið mjög vinsæll í forpöntunum og hefur stærri útgáfa hans iPhone 7 Plus selst upp í forsölu. Ýmsar breytingar eru á nýja símanum, meðal annars er ekki lengur innstunga fyrir heyrnartól og eru fleiri nýjir litir í boði í svörtu sem skýra má áhuga viðskiptavinia.

Apple hefur hins vegar einnig notið góðs af því að nýjasti sími úr smiðu aðal samkeppnisaðila hans, Samsung, hefur átt í tæknilegum erfiðleikum þar sem hann hefur verið búinn tæknigalla sem hefur valdið sprengingu. Samsung hefur þurft að taka símann úr sölu og innkalla nokkrar milljónir síma. Þetta hefur leitt til verulegrar hækkunar hlutabréfa, í gær hafði markaðsvirði Apple aukist um 27 milljónir dala frá því á föstudaginn.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×