Menning

Hlustað á vindinn syðra og vestra

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Henna-Riikka Nurmi dansari hefur búið á Ísafirði frá 2005. Maro Lahti leikari býr í Finnlandi en ver sumrunum á Flateyri.
Henna-Riikka Nurmi dansari hefur búið á Ísafirði frá 2005. Maro Lahti leikari býr í Finnlandi en ver sumrunum á Flateyri. Mynd/Úr einkasafni
Leikararnir Marjo Lahti og Henna-Riikka Nurmi hafa þýtt og stílfært sýninguna Puhu tuuli purteheni sem útleggst á íslensku Ég hlusta á vindinn. Hún verður sýnd í Barnahelli Norræna hússins á laugardag og sunnudag klukkan 14 og í Edinborgarhúsinu á Ísafirði 9. og 10 september.



Sýningin fer fram á íslensku og finnsku og tekur um 45 mínútur.

Hugmyndin að henni er byggð á foreldrahlutverkinu og hinu einstaka sambandi milli barns og foreldris.

Söngvar og textar sem farið er með eru úr Kanteletar úr Kalevala og Eddukvæðum.

Þetta er fjölskyldusýning, sérstaklega sniðin að börnum, allt frá 3 mánaða til 5 ára, þó allir geti notið sýningarinnar sem er persónuleg, litrík og skemmtileg.

Hún hefur verið vinsæl í Finnlandi frá árinu 2009 þegar hún var frumsýnd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×