Innlent

Hlupu uppi vafasama ferðalanga

Gissur Sigurðsson skrifar
Vaskir laganna verðir hlupu uppi menn sem vildu flýja af vettvangi.
Vaskir laganna verðir hlupu uppi menn sem vildu flýja af vettvangi.
Lögregla hljóp uppi og handtók þrjá menn í gærkvöldi á Bíldshöfða í Reykjavík, eftir að þeir höfðu lent í umferðaróhappi og ætluðu að stinga af. Ökumaðurinn er grunaður um fíkniefnaakstur og eru allir mennirnir vistaðir í fangageymslum uns þeir verða yfirheyrðir í dag.

Fyrr um kvöldið ók einhver utan í kyrrstæðan og mannlausan bíl vð Frakkastíg og stakk af. Einhverjar skemmdir urðu á kyrrstæða bílnum en ökufanturinn er ófundinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×