Skoðun

Hlunnfarnar um tugi milljóna

Heiða Björg Hilmarsdóttir og Margrét Lind Ólafsdóttir skrifar
Kvennahreyfing Samfylkingarinnar lýsir yfir miklum vonbrigðum með niðurstöður nýlegra kjarakannanna BSRB og BHM þar sem viðvarandi kynbundinn launamunur er enn einu sinni staðfestur. Það er skammarlegt að árið 2013 sé óútskýrður kynbundinn launamunur 11 til 15% hjá ríki, 13 til 20% hjá sveitarfélögum og enn meiri á einkamarkaði. Kynbundinn launamunur sem viðgengst á Íslandi hefur það í för með sér að íslenskar konur eru á starfsævi sinni hlunnfarnar um tugi milljóna króna.

Mannréttindabrotin sem í þessum tölum birtast eru óásættanleg.

Ríki og sveitarfélög eiga að vera í fararbroddi í baráttunni gegn kynbundnum launamun og skýr fyrirmynd í þessum efnum. Því ber að fagna að hjá ríkinu og einstökum sveitarfélögum hefur á liðnum árum náðst nokkur árangur í baráttunni.

Tölur Hagstofunnar sýna að milli áranna 2008 og 2012 hefur launamunur kynjanna minnkað um fjórðung hjá ríkinu (farið úr 21,2% í 16,2%) og í könnun BSRB kemur fram að milli áranna 2012 og 2013 minnkaði óútskýrður kynbundinn launamunur um ríflega fjórðung (fór úr 14,1%-10,9%). Þessar tölur sýna og sanna að launamunur kynjanna er ekki óviðráðanlegt náttúrulögmál heldur mannanna verk og að honum má eyða á skömmum tíma. En betur má ef duga skal því enn er óréttlætið til staðar.

Kvennahreyfing Samfylkingarinnar hvetur öll fyrirtæki og stofnanir á vegum ríkis og sveitarfélaga til að taka nú til óspilltra málanna á eigin forsendum og óska eftir jafnlaunavottun á grundvelli hins nýja jafnréttisstaðals sem unninn var í góðu samstarfi stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins á liðnum árum. Almenningur ætti að styðja slíkt átak með því að beina viðskiptum sínum til fyrirtækja sem slíka vottun hafa.

Þá er mikilvægt að áfram verði unnið eftir þeirri yfirgripsmiklu aðgerðaráætlun um launajafnrétti sem ríkisstjórn jafnaðarmanna samþykkti í lok síðasta árs. Hið sama á við um jafnlaunaátak stjórnvalda sem hófst fyrr á þessu ári og miðaði að því að hækka laun fjölmennustu kvennastéttanna hjá ríkinu.

Stjórn Kvennahreyfingarinnar hvetur ríkisstjórnina til að halda markvisst áfram þeirri vinnu sem fyrri stjórn lagði grunninn að og leggja allan þunga í að uppræta það mein sem kynbundinn launamunur er í okkar samfélagi. Um þetta mannréttindamál eiga allir flokkar á Alþingi að geta sameinast.




Skoðun

Sjá meira


×