Lífið

Hljómsveitin Steini gefur út plötu

Hlómsveitin Steini.
Hlómsveitin Steini.

Í dag kemur út ný plata með hljómsveitinni Steina sem vann Þorskastríð Cod Music fyrr á árinu og fékk í verðlaun útgáfusamning.

 

Samkvæmt fréttatilkynningu er að finna 12 lög á plötunni sem heitir Human Comfort.

 

Fyrstu lögin í spilun af plötunni eru Girls Are All the Same og Agnes of God en þau hafa bæði fengið góða spilun á öllum helstu útvarpsstöðvum landsins.



Þess má geta að Steini fékk ekki aðeins útgáfusamning þegar hann vann Þorskastríðið heldur einnig kassa af þorskalýsi og 10 kíló af þorski.

 

 

Það fylgir ekki sögunni hvort þær birgðir hafa klárast.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×