Innlent

Hljóðið í kennurum er þungt um allt land

Sveinn Arnarsson skrifar
Fullt var út úr dyrum á samstöðufundi grunnskólakennara á Akureyri í gær. Mikill hugur er í fólki að berjast fyrir leiðréttingu á launum þeirra.
Fullt var út úr dyrum á samstöðufundi grunnskólakennara á Akureyri í gær. Mikill hugur er í fólki að berjast fyrir leiðréttingu á launum þeirra. vísir/auðunn
Þungt hljóð er í kennurum á Akureyri vegna kjarabaráttu kennara. Kollegar þeirra á höfuðborgarsvæðinu hafa sagt upp störfum í stórum stíl og gangi uppsagnir eftir gæti ófremdarástand skapast í kennslu víða á höfuðborgarsvæðinu. Kennarar á Akureyri lögðu einnig niður störf í gær og gengu til fundar þar sem farið var yfir stöðuna.

Helga Dögg Sverrisdóttir, ein af skipuleggjendum samstöðufundar á Akureyri, segir stöðuna alvarlega og fundurinn því mjög mikilvægur svo stéttin geti talað saman og stappað stálinu hvert í annað.

Helga Dögg Sverrisdóttir, grunnskólakennari á Akureyri.vísir/auðunn
„Nú er boltinn hjá sveitarfélögunum að bæta laun kennara. Það gengur ekki að við séum alltaf látin sitja eftir. Til þess að við samþykkjum þriðja samninginn sem skrifað er undir er ljóst að það þarf að bæta verulega í,“ segir Helga Dögg. „Við hljótum að sjá að menntun kennara og sú ábyrgð sem er sett á herðar okkar er ekki í samræmi við laun okkar. Þessu þarf að breyta.“

Hún segir kennara á Akureyri vera tilbúna til að ganga lengra en þetta til að berjast fyrir hærri launum. Hún segir einnig að komi til verkfalls gæti það gerst að flótti bresti á í stéttinni. „Það er næga vinnu að hafa fyrir fólk með kennaramenntun í samfélaginu. Við sjáum það til dæmis glögglega í Reykjavík og í Reykjanesbæ. Þurfi að koma til verkfalls gæti ég séð mun fleiri hætta kennslu og færa sig um set á vinnumarkaði, fá mun betur borgað og þurfa ekki að fara á verkfallsbætur á meðan,“ segir Helga og bætir við að nýliðun í stéttinni sé allt of lítil. „Ef það er vilji til að viðhalda stéttinni með menntuðu og öflugu fólki þarf að sýna það í verki.“

Grunnskólakennarar á Ísafirði mættu einnig á fund bæjarráðs í gær og lásu þar upp áskorun til bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar. Skoruðu kennarar á bæinn að samið yrði við grunnskólakennara sem fyrst. Ef ekkert verður að gert að mati kennara á Ísafirði mun grunnskólakerfið bíða alvarlegan hnekki. „Lág laun kennara hafa nú þegar valdið uppsögnum og sækja sífellt færri í kennaranám og margir menntaðir kennarar sækja í önnur störf. Alvarlegur kennaraskortur blasir því við á næstu misserum. Við krefjumst þess að grunnlaun kennara hækki nú þegar til samræmis við laun framhaldsskólakennara,“ segir í yfirlýsingu þeirra.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×