Glamour

Hlín Reykdal gerir nisti fyrir Göngum saman

Ritstjórn skrifar
Hulda Bjarnadóttir, Brynja Baldursdóttir, Gunnhildur Óskarsdóttir og Birna Einarsdóttir.
Hulda Bjarnadóttir, Brynja Baldursdóttir, Gunnhildur Óskarsdóttir og Birna Einarsdóttir. Myndir/Íris Stefánsdóttir
Skartgripahönnuðurinn Hlín Reykdal hefur hannað nisti í tveimur litum sem fer í sölu í dag en nistið er gert í samstarfi við samtökin Göngum saman og rennur salan til styrktar grunnrannsóknum á brjóstakrabbameini.

Salan á nistunum hefst í dag klukkan 15:00 með gleðistund í verslun Hlínar á Fiskislóð 75. Nistin verða seld hjá Hlín í tvær vikur, eða meðan birgðir endast. Einnig er tekið við pöntunum í gegnum skilaboð á Facebook síðu félagsins ef fólk vill fá nisti í póstkröfu.

Göngum saman fagnar 10 ára afmæli í ár og af því tilefni er ýmislegt á döfinni á næstunni sem hefst með sölu á nistunum hennar Hlínar. 

Omnom verður með sérstakan súkkulaðiglaðning í apríl, Hildur Yeoman hannar boli og fleira fyrir mæðradagsgönguna 14. maí og Landsamband bakameistara leggur félaginu lið með sölu á brjóstabollum mæðradagshelgina eins og undanfarin ár. Í haust er svo fyrirhugað afmælismálþing félagsins.

Styrktarfélagið Göngum saman styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og hefur veitt íslenskum vísindamönnum 70 milljónir í styrki frá upphafi.

Göngum saman leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar til heilsueflingar og vikulegar göngur félagsins eru opnar öllum áhugasömum. Upplýsingar um stað og stund er að finna á heimasíðu samtakanna gongumsaman.is og á facebook síðu félagsins.






×