Erlent

Hlé gert á réttarhöldum yfir Pistorius

Bjarki Ármannsson skrifar
Oscar Pistorius skrifar eitthvað hjá sér á meðan réttarhöldum stendur.
Oscar Pistorius skrifar eitthvað hjá sér á meðan réttarhöldum stendur. Vísir/AFP
Hlé hefur verið gert yfir réttarhöldunum yfir spretthlauparanum Oscar Pistorius. Þau munu hefjast á ný þann fimmta maí næstkomandi.

Fréttaveitan Reuters greinir frá þessu. Hinn 27 ára gamli Pistorius er ákærður fyrir morð á kærustu sinni, Reeva Steenkamp, en hann skaut hana til bana á heimili sínu á Valentínusardag í fyrra. Hann heldur því fram að um slys hafi verið að ræða og að hann hafi talið hana vera innbrotsþjóf.

Undanfarna þrjá daga hefur saksóknarinn Gerrie Nel sótt hart að Pistorius og vitnum verjanda hans. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×