Innlent

Hlakka til framtíðarinnar

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Albanska Telati fjölskyldan er í skýjunum yfir að hafa fengið dvalarleyfi á Íslandi í gær, en þau eru fyrstu Albanarnir sem fá dvalarleyfi  hér á landi á grundvelli Útlendingalaga. Þau eru full tilhlökkunar fyrir framtíðinni.

Telati fjölskyldan komst fyrst í fréttirnar í september þegar Fréttablaðið greindi frá því að börnin þrjú höfðu ekki fengið skólavist þrátt fyrir að hafa dvalið á landinu frá því í júní. Fór svo að börnin fengu inni í skóla í Laugarneshverfinu og kunnu öll vel við sig þar. 

Í október synjaði Útlendingastofnun fjölskyldunni svo um dvalarleyfi en sú ákvörðun vakti mikla reiði í samfélaginu. Tíu þúsund manns skrifuðu til að mynda undir undirskriftarlista þar sem stjórnvöld voru hvött til að leyfa fjölskyldunni að vera áfram á Íslandi. 

Laura, sem er í tíunda bekk, segir vinkonur sínar í skólanum hafa farið að hágráta þegar fréttirnar um að dvalarleyfið væri í höfn bárust.VÍSIR/SKJÁSKOT
Krakkarnir voru í skólanum þegar þeim bárust gleðifréttirnar í gær. 

„Allir fóru að gráta og ég spurði hvað væri um að vera. Þá var mér sagt að við fengjum að vera um kyrrt. Það voru allir grátandi og ég var agndofa, ég vissi ekki hvað var að gerast,“ segir Laura Telati sem er elst systkinanna þriggja.

Janie segir svar Útlendingastofnunar hafa komið sér mikið á óvart.
Fjölskyldunni var veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum og vegna sérstakra tengsla þeirra við landið. Albanir eru stærsti hópur hælisleitenda hér á landi en umsóknum þeirra hefur hingað til öllum verið hafnað. Ákvörðunin kom fjölskyldunni því nokkuð á óvart. 

„Ég var mjög hissa, ég hélt við fengjum ekki að vera hérna. Pabbi var vanur að segja að við gætum orðið fyrsta fjölskyldan sem fengi jákvætt svar, og það reyndist satt. Ég er svo ánægð,“ segir Janie sem er þrettán ára. 

Foreldrarnir Hasan og Aleka eru bæði komin með vinnu og hlakka til að takast á við daglegt líf án ótta um að vera vísað úr landi.

„Nú getum við farið að gera áætlanir um hvað við viljum gera. Þetta er ótrúlegt og maður finnur til mikils léttis. Nú getum við unnið og notið lífsins áhyggjulaust eins og allir aðrir og séð fyrir fjölskyldunni,“ segir Aleka með bros á vör.






Tengdar fréttir

Hálfs árs bið eftir niðurstöðu kærunefndar útlendingamála

"Ég get því miður ekki gefið upplýsingar um einstök mál. Mér sýnist að eins og er sé um 5-6 mánaða bið eftir niðurstöðu á hælismálum hjá okkur frá því að gögn um kæruna berast okkur,“ segir Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður kærunefndar útlendingamála.

Fréttaljósmyndir ársins 2015

Ljósmyndarar Fréttablaðsins og Vísis eru sjaldan langt undan þegar fréttaviðburðir eiga sér stað.

Telati fjölskyldan fékk dvalarleyfi

Laura, Hasan Aleka, Janie og Petrit, betur þekkt sem Telati fjölskyldan frá Albaníu, hafa fengið dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum og vegna sérstakra tengsla þeirra við landið.

Fjölskyldan fékk synjun um hæli

Albönsk fjölskylda þarf að fara úr landi sem fyrst. Börnin eru nýbyrjuð í skóla í Laugarneshverfinu og eru alsæl. Foreldrarnir segjast ekki þurfa fjárhagsaðstoð, bara leyfi til að vinna og búa á Íslandi.

Laura Telati. „Heimurinn er okkar allra“

"Heimurinn er okkar allra og það er pláss fyrir okkur öll í honum, svo afhverju að aðgreina og fela sig frá öðrum?“ sagði Laura Telati, albanskur táningur í Laugalækjarskóla, sem vísa á úr landi.

Nær útilokað að Telati- fjölskyldan fái hér hæli

Erfitt getur verið fyrir fólk frá Albaníu að fá dvalarleyfi vegna atvinnu hér á landi. Lögfræðingur með sérhæfingu í málefnum útlendinga telur dvalarleyfi af mannúðarástæðum bestu lausnina fyrir Telati-fjölskylduna.

Albönsku börnin komin í skóla: Mikil gleði fyrsta skóladaginn

Faðir þriggja albanskra barna, sem hingað til hafa ekki fengið skólavist í íslenskum grunnskólum, segir daginn í dag afar ánægjulegan, en í morgun byrjuðu börn hans loksins í skólanum. Yngsti sonur hans segir skemmtilegast að læra stærfræði og leika sér við aðra krakka.

Gjafir og góðvild bárust ekki systkinum

Þau Laura, Janie og Petrit geta öll hafið skólagöngu á Íslandi innan fárra daga en eiga ekkert til skólagöngunnar. Fjölmargir vildu leggja börnunum lið og gefa þeim gjafir til að létta undir með þeim.

Telati-fjölskyldan trúði ekki góðu fréttunum

Telati-fjölskyldan fékk dvalarleyfi af mannúðarástæðum og vegna sérstakra tengsla við Ísland í gær. Þau trúðu ekki góðu fréttunum í fyrstu því þau höfðu búið sig undir það versta. Tíu þúsund skrifuðu undir undirskriftarsöf




Fleiri fréttir

Sjá meira


×