Handbolti

HK styrkir sig fyrir komandi átök

Bjarki ætlar ekki að gefast upp strax.
Bjarki ætlar ekki að gefast upp strax. vísir/stefán
Botnlið HK í Olís-deild karla er ekki af baki dottið.

Tveir nýir menn koma inn í liðið er deildin hefst á ný eftir HM. Veitir ekki af þar sem HK er sex stigum á eftir liðinu sem er í næstneðsta sæti deildarinnar.

Máni Gestsson er genginn í raðir HK frá ÍR. Hann er sterkur í vörn sem og á línu. Bjarki Sigurðsson, þjálfari HK, var með hann hjá ÍR á sínum tíma og þekkir vel til hans.

Þá mun Atli Karl Bachmann leika með liðinu af krafti eftir áramót en hann spilaði ekkert fyrir jól vegna anna í krefjandi námi.

Atli var markahæsti leikmaður HK á síðasta tímabili og munar því mikið fyrir HK um að fá hann aftur inn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×