Innlent

Hjúkrunarfræðingar leigi sig út sjálfir: Vinna hafin við stofnun hjúkrunarmiðlunar

Bjarki Ármannsson skrifar
Hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum hafa sagt upp í hrönnum síðan lög voru sett á verkfall þeirra.
Hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum hafa sagt upp í hrönnum síðan lög voru sett á verkfall þeirra. Vísir/Vilhelm
„Þar sem fregnir hafa borist af því að það eigi að kaupa vinnuafl erlendis frá, finnst okkur ekki úr vegi að íslenskir hjúkrunarfræðingar bjóði Landspítalanum að kaupa íslenskt, sérþjálfað vinnuafl,“ segir Sóley Ósk Geirsdóttir, ein þeirra hjúkrunarfræðinga sem hist hafa undanfarið með það fyrir augum að koma á fót svokallaðri hjúkrunarmiðlun. Ætlunin er að stofna sjálfseignarstofnun hjúkrunarfræðinga þaðan sem ríkið myndi leigja út starfsemi þeirra.

Ríkið ákvarði ekki lengur launin

„Við erum ekki búin að stofna félag, en við erum á byrjunarstigi,“ segir Sóley. „Við erum að skoða grundvöllinn fyrir svona stofnun, þar sem við myndum bara selja okkur út.“

Sóley segir verkefnið skammt á veg komið. Enn eigi eftir að skoða ýmsar lagalegar hliðar á slíkri sjálfseignarstofnun en hópurinn sjái fyrir sér einhvers konar samstarf við Landspítalann frekar en að stofna eigin starfsstöðvar.

Sjá einnig: Bálreiðir hjúkrunarfræðingar ætla að standa við uppsagnir

„Spítalinn myndi leigja hjúkrunarfræðinga út á okkar taxta. Þannig að ríkið myndi ekki ákvarða okkar laun lengur,“ útskýrir hún. „Það er helsta hugmyndin í þessu, að vera ekki kúguð af karlmönnum í stjórnmálum hvað varðar launin okkar.“

Framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítalanum sagði í kvöldfréttum Stöðvar tvö það ekki vera heildarlausn að bregðast við fjöldauppsögnum hjúkrunarfræðinga með erlendu vinnuafli. Sjá má innslagið hér að neðan.

Hugmynd Sóleyjar og félaga hefur fengið mikinn hljómgrunn frá því að fyrst var greint frá henni á lokaðri Facebook-síðu hjúkrunarfræðinga í dag. Sóley var einn fjögurra sem hittust á fundi í hádeginu en nú eru komnir átta til tíu manns í innsta hóp og fjölmargir aðrir búnir að lýsa yfir áhuga og stuðningi. Hún segist finna fyrir miklum meðbyr meðal hjúkrunarfræðinga.

„Þetta verður eignarhaldsfélag okkar hjúkrunarfræðinga og allir munu hafa áhrif,“ segir Sóley. „Allir eru vel af vilja gerðir að sinna sínum störfum hér á landi en kaup og kjör eru ekki boðleg. Allir eru tilbúnir að leggja sína krafta og vinnu við að koma þessu á legg.“

Þarf að vinnast hratt

Næstu skref verða tekin á fundi snemma í næstu viku, að sögn Sóleyjar. Hendur munu þurfa að standa fram úr ermum, enda munu fjöldauppsagnir hjúkrunarfræðinga taka gildi í byrjun október og mun það hafa grafalvarlegar afleiðingar á starfsemi Landspítalans.

Sjá einnig: Gjörgæslan verður óstarfhæf 1. október

„Þetta þarf að vinnast hratt,“ segir Sóley, og ítrekar það að hjúkrunarfræðingar landsins séu komnir með meira en nóg af núverandi ástandi. Mikilvægt sé að fólk geri sér grein fyrir því hversu erfitt starf hjúkrunarfræðinga er.

„Við erum undir allskonar álagi. Ég lenti í því nýverið að ég var í miðjum umbúnaði á líki á krabbameinslækningadeild þegar ég fékk að vita að barnið mitt hefði slasast á leikskóla. Ég gat ekkert farið og sinnt því. Þannig að það er ýmislegt ófyrirsjáanlegt sem við þurfum að taka að okkur sem er ekki metið okkur til tekna.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×